Skopmyndasamkeppni um Helförina 8. febrúar 2006 12:28 Mótmælendur í Íran brenna danska fánann. MYND/AP
Íranskt dagblað ætlar að efna til skopmyndasamkeppni um Helförina. Forsvarsmenn blaðsins segja að með því ætli þeir að láta reyna á hversu mikilvægt Vesturlandabúar telji tjáningarfrelsið vera. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hefur fordæmt yfirlýsingar blaðsins og sagt þær smekklausar og að með þessu væri beinlínis verið að efna til ófriðar. Gríðarleg spenna ríkir nú á milli múslimalanda og Vesturheims vegna myndbirtinganna af Múhameð spámanni. Uffe Elleman Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Dana, sagði í gær að ritstjóri Jótlandspóstsins ætti að segja af sér vegna málsins. Jótlandspósturinn greindi frá því í morgun að Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hefðu tekið höndum saman með 57 íslömskum ríkjum til að reyna að lægja öldurnar í deilunni sem virðist sífellt vera að harðna. Samtökin tvö og ríkin fordæma ofbeldisfull mótmæli múslima og hvetja þá til að sýna stillingu. Teikningarnar umdeildu hafa birst í dagblöðum og tímaritum í sextán löndum, samkvæmt frétt sem AP fréttastofan sendi frá sér í gær. Ísland er þar á meðal ásamt Danmörku og Grænlandi. Athygli vekur að fréttastofan telur Noreg ekki með. Framkvæmdastjórn Íransstjórn hefur ákveðið að hætta viðskiptum við fyrirtæki í Danmörku í mótmælaskyni. ESB hefur fordæmt ákvörðunina og íhugar frekari viðbrögð við ákvörðun Íransstjórnar. George Bush Bandaríkjaforseti hringdi í gær í Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana og tjáði honum stuðning sinn við málstað þeirra um að biðjast ekki afsökunar á myndbirtingunni. Þúsundir mótmælenda brenndu eftirlíkingu af Bush, í Pakistan í dag en mótmælendurnir vildu meina að Bush stæði á bak við birtingu skopteikninganna. Íranar sem og Pakistanar vilja að öll viðskiptasamningum verði rift við Dani og öll þau lönd sem birt hafa myndina af Múhameð. Öfgafullir trúarleiðtogar hafa hótað hryðjuverkum í Danmörku vegna málsins og hvetja liðsmenn til að ráðast á Dani hvar sem þá er að finna.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Sveitarstjórn krefur símafyrirtækin um skýringar eftir alvarlegt vinnuslys Innlent Sýna þjóðinni þá lágmarksvirðingu að hætta að snúa út úr Innlent Nei-hliðin vann á ástríðunni Innlent Fleiri fréttir Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Sjá meira