Ofsatrúarmenn í Írak hvetja til árása 31. janúar 2006 13:15
Hópur herskárra ofsatrúarmanna í Írak hvetur meðlimi sína til að ráðast á þá Dani og Norðmenn sem meðlimirnir mögulega ná til. Ástæðan eru skopteikningarnar af spámanninum Múhameð sem birst hafa í dagblöðum í löndunum tveimur. Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Danmerkur, hvatti í gær leiðtoga danskra múslíma til að lægja öldurnar meðal trúbræðra sinna og taka afstöðu gegn því að danskar vörur verði sniðgengnar enda væri dönskum vinnustöðum haldið í gíslingu með því. Forsætisráðherrann leyndi því ekki að hann telur trúarleiðtoga hafa haft áhrif á það hve málið hefur blásið upp. Jótlandspósturinn segir myndirnar ekki stríða gegn dönskum lögum en margir múslímar hafi tekið þær sem móðgun og hefur blaðið því beðist afsökunar. Sádi-Arabía hefur kallað heim sendiherra sinn í Kaupmannahöfn vegna málsins. Þá hefur Líbýa lokað sendiráði sínu í Danmörku. Danir og Norðmenn í Palestínu hafa verið varaðir við því að þeir geti búist við árásum en öfgasinnaðir múslimar hafa hvatt fólk til að ráðast á skandinava sem staðsettir eru á svæðinu. Danahatur nokkuð víða meðal múslimaAlmenningur í fjölda múslimalanda hefur verið hvattur til að sniðganga danskar vörur og ætla spítalar margir hverjir til að mynda að hætta að kaupa danskt insúlín frá Novo Nordisk. Bandarískur almenningur virðist ætla að koma Dönum þó til bjargar en á fjölmörgum bandarískum vefsíðum er hvatt til þess að fólk kaupi danskar vörur og búist er við því að Bandaríkjamenn muni á næstunni hampa dönskum bjór, skinku og bakkelsi. Þá hefur NFS það eftir Íslendingi, sem er búsettur í Kaupmannahöfn, að þar gangi SMS skeytin á milli manna þar sem Danir eru hvattir til að sniðganga verslanir og önnur fyrirtæki múslima í borginni. Óhætt er að segja að Danahatur sé orðið nokkuð víða í múslimalöndum en meirihluti Dana er á þeirri skoðun að ekki hafi átt að biðjast afsökunar á myndbirtingunni.
Erlent Fréttir Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Fleiri fréttir Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Vill gera á Vesturbakkanum það sem gert var á Gasa Þúsundir tálma göngu Óraníureglunnar Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Heimili rýmd nærri herflugstöð Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair „Ég hafna samningi þeirra“ Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Sjá meira