66 hafa fundist látnir í rústum sýningarhallarinnar í Póllandi 29. janúar 2006 15:30
Enn hækkar tala látinna eftir slysið í Katowice í Póllandi, en nú hafa sextíu og sex lík fundist í rústum sýningarhallarinnar, en þak hennar hrundi í gær. Enginn hefur fundist á lífi síðan í gærkvöld. Talið er að um fimm hundruð manns hafi verið í höllinni að fylgjast með dúfnasýningu þegar ógæfan dundi yfir. Að sögn sjónarvotta heyrðist brestur í þakinu rétt áður en það féll saman og greip að vonum um sig mikil skelfing. Björgunarlið leitaði í rústunum í alla nótt en enginn hefur fundist á lífi síðan klukkan níu í gærkvöldi enda fór frostið niður í sautján gráður. Reynt var að blása heitu lofti inn í rústirnar en það virðist hafa stoðað lítið. Sextíu og sex lík hafa fundist og 140 eru slasaðir, sumir alvarlega. Ekki er ljóst hvað varð til þess að þakið hrundi. Slökkviliðið telur að það hafi gefið sig undan snjófargi en eigendur hússins staðhæfa að þeir hafi hreinsað þakið með reglulegu millibili og kemur það heim og saman við lýsingar sjónvarvotta. Ekki er útilokað að frostið hafi veikt málmundirstöðurnar þannig að þær létu undan. Leit verður haldið áfram í dag.
Mest lesið Ökumaður bifhjólsins látinn Innlent Ógeðsleg aðkoma að íbúðinni eftir Airbnb-gesti Innlent Ísland leggur til fólk í finnskar herstöðvar Innlent „Við ætlum að upplifa stóra drauminn hans Kristians Helga” Innlent Keyptu ónýtt hús og fá ekki áheyrn Innlent Lögreglumaður á sjúkrahúsi eftir alvarlega árás á Goslokahátíð Innlent Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent Alvarlegt mótorhjólaslys og Miklubraut lokað Innlent Pilturinn er fundinn Innlent Gufunesmálið: Hringdu um miðja nótt og sögðu hinn látna vera kynferðisafbrotamann Innlent Fleiri fréttir Bindur vonir við „einn inn, einn út“ áætlun í innflytjendamálum Vill hefna vinar síns Bolsonaro með 50 prósenta tollum á Brasilíu Þrír látnir og sextán saknað eftir árás á fraktskip Sigldi á ísjaka á fleygiferð og komst naumlega af Ljóstruðu upp um heimilisfang sænska forsætisráðherrans á Strava Þurfa ekki lengur að fara úr skónum í öryggiseftirlitinu Rússar gera umfangsmikla drónaárás á yfir 700 skotmörk Eyddu færslum spjallmennisins sem lofuðu Adolf Hitler 109 látnir og yfir 160 saknað Er Trump að gefast upp á Pútín? Aðeins eitt mál enn óleyst í vopnahlésviðræðum Öllu flugi til og frá næststærstu borg Frakklands aflýst Náðu myndum af gesti frá annarri stjörnu Harma dauða ráðherrans en tjá sig ekki um hann Sakfelldir fyrir að kveikja í iðnaðarhúsnæði fyrir Wagner-málaliða Hafnar gagnrýni á samskipti við lyfjarisa í faraldrinum Bresk stjórnvöld hyggja á aðgerðir gegn trúnaðarsamningum Ekki fleiri greinst með mislinga í Bandaríkjunum í 33 ár Vill safna íbúum Gasa í lokaðar búðir og flytja síðan á brott Bandamenn fá hótunarbréf um 25 til 40 prósent toll „Þeir verða að geta varið sig“: Hættir við að hætta vopnasendingum Yfir hundrað látnir í Texas Ellefu dagar milli nýrra jarðganga í Færeyjum Samgönguráðherrann lést daginn sem Pútín rak hann Pútín rekur samgönguráðherrann eftir miklar raskanir á flugi Eldgos í Lewotobi Laki Laki í Indónesíu Líkir tilætlunum Musk við lestarslys Fundin sek um að myrða ættingja með eitruðum sveppum Á níunda tug látin í hamfaraflóðum Friðarviðræður hafnar í Katar og Netanyahu heldur til Washington Sjá meira
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent