Innlent

Kynferðisbrot gegn þroskaheftri stúlku

Mynd/Hari

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í fimm mánaða fangelsi í dag fyrir kynferðisbrot gegn sautján ára þroskaheftri stúlku. Héraðsdómur Reykjaness gagnrýnir vinnubrögð og rannsókn lögreglu í málinu og segir hana hafa brotið gegn stjórnarskrá lýðveldisins og mannréttindasáttmála Evrópu.

Atburðirnir sem dæmt er fyrir áttu sér stað á heimili ákærða í desember 2004. Stúlkan sem er verulega greindarskert var þá tæplega 18 ára en talin hafa þroska á við átta ára barn. Hún ber að maðurinn hafi dregið hana inn í svefnherbergi, sparkað í hana, tekið hana kverkataki og sett fingur upp í leggöng hennar. Þá hafi hann brennt vinstra brjóst hennar með sígarettuglóð og loks hótað henni lífláti. Ákærði neitaði öllum sakargiftum. Rannsókn málsins tók langan tíma, og er lögregla gagnrýnd hart fyrir vinnubrögð sín í málinu.

Stúlkan varð 18 ára þremur dögum eftir árásina og segir dómurinn að lögregla hafi, þegar hún tók skýrslu af stúlkunni níu dögum eftir árásina, án þess að gera öðrum en réttargæslumanni viðvart, ekki aðeins brotið á rétti stúlkunnar heldur einnig á lögvörðum rétti hins ákærða til réttlátrar málsmeðferðar.

Þykja þessi vinnubrögð brjóta gegn stjórnarskrá lýðveldisins og mannréttindasáttmála Evrópu. Þá þykja vinnubrögð lögreglu þeim mun ámælisverðari fyrir þær sakir að óskað hafði verið eftir því skriflega að skýrslutaka yfir stúlkunni færi fram í Barnahúsi, vegna þroskahömlunar hennar, en þess var að engu getið í tveimur skýrslum lögreglunnar. Skýrslutökur hjá lögreglu þóttu ennfremur ófullkomnar og ófullnægjandi. Þá lét lögregla undir höfuð leggjast að framkvæma nauðsynlega vettvangsrannsókn á heimili ákærða. Dómurinn segir að ákæruvaldið þurfi að bera allan halla af sönnunarskorti sem leiði af mistökum lögreglu. Þrátt fyrir að framburður stúlkunnar eigi stoð í vitnisburði ýmissa annarra vitna telur dómurinn, vegna margra vafaatriða og óljósra atriða í skýrslum, að sýkna beri manninn af öllum ákæruatriðum, en telur þó rétt að sakfella hann fyrir grófa líkamsárás og hlýtur hann fyrir það fimm mánaða fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×