Kynferðisbrot gegn þroskaheftri stúlku 27. janúar 2006 22:39 Mynd/Hari
Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í fimm mánaða fangelsi í dag fyrir kynferðisbrot gegn sautján ára þroskaheftri stúlku. Héraðsdómur Reykjaness gagnrýnir vinnubrögð og rannsókn lögreglu í málinu og segir hana hafa brotið gegn stjórnarskrá lýðveldisins og mannréttindasáttmála Evrópu. Atburðirnir sem dæmt er fyrir áttu sér stað á heimili ákærða í desember 2004. Stúlkan sem er verulega greindarskert var þá tæplega 18 ára en talin hafa þroska á við átta ára barn. Hún ber að maðurinn hafi dregið hana inn í svefnherbergi, sparkað í hana, tekið hana kverkataki og sett fingur upp í leggöng hennar. Þá hafi hann brennt vinstra brjóst hennar með sígarettuglóð og loks hótað henni lífláti. Ákærði neitaði öllum sakargiftum. Rannsókn málsins tók langan tíma, og er lögregla gagnrýnd hart fyrir vinnubrögð sín í málinu. Stúlkan varð 18 ára þremur dögum eftir árásina og segir dómurinn að lögregla hafi, þegar hún tók skýrslu af stúlkunni níu dögum eftir árásina, án þess að gera öðrum en réttargæslumanni viðvart, ekki aðeins brotið á rétti stúlkunnar heldur einnig á lögvörðum rétti hins ákærða til réttlátrar málsmeðferðar. Þykja þessi vinnubrögð brjóta gegn stjórnarskrá lýðveldisins og mannréttindasáttmála Evrópu. Þá þykja vinnubrögð lögreglu þeim mun ámælisverðari fyrir þær sakir að óskað hafði verið eftir því skriflega að skýrslutaka yfir stúlkunni færi fram í Barnahúsi, vegna þroskahömlunar hennar, en þess var að engu getið í tveimur skýrslum lögreglunnar. Skýrslutökur hjá lögreglu þóttu ennfremur ófullkomnar og ófullnægjandi. Þá lét lögregla undir höfuð leggjast að framkvæma nauðsynlega vettvangsrannsókn á heimili ákærða. Dómurinn segir að ákæruvaldið þurfi að bera allan halla af sönnunarskorti sem leiði af mistökum lögreglu. Þrátt fyrir að framburður stúlkunnar eigi stoð í vitnisburði ýmissa annarra vitna telur dómurinn, vegna margra vafaatriða og óljósra atriða í skýrslum, að sýkna beri manninn af öllum ákæruatriðum, en telur þó rétt að sakfella hann fyrir grófa líkamsárás og hlýtur hann fyrir það fimm mánaða fangelsi.
Fréttir Innlent Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Erlent Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Innlent Fleiri fréttir Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Sjá meira