Efnahagsuppbygging á Íslandi einna hröðust í heiminum 27. janúar 2006 22:33
Hagvöxtur hér á landi var rúmlega fimm prósent í fyrra, sem er nánast einsdæmi á Vesturlöndum. Hástökkvararnir í hagvexti eru hins vegar risarnir í Asíu, Kína, þar sem hagvöxturinn var níu prósent í fyrra, og Indland þar sem hagvöxturinn var rúm sjö prósent. Ísland er þannig í flokki þeirra landa þar sem efnahagsuppbygging hefur verið einna hröðust í heiminum. Óvenjulegt þykir að hagvöxtur á Íslandi, sem fyrir er meðal ríkustu ríkja heims, sé á við vöxt margra þróunarlanda sem hingað til hafa búið við mjög kröpp kjör en færast nú hröðum skrefum í átt til betra lífs. Aðalástæður mikils hagvaxtar hérlendis eru erlendar fjárfestingar í stóriðjuframkvæmdum sem og arðbærar fjárfestingar fyrirtækja landsins. Jón Bjarki Bentson, sérfræðingur í Greiningu Íslandsbanka, segir fjárfestingar í stóriðju hafa drifið þá uppsveiflu sem hefur verið hér undanfarin ár. En að einnig hafi komið til víðtæk kerfisbreyting í fjármálakerfinu sem hafi skilað okkur vel fram á veg og bætt við kaupmátt og þar af leiðandi neyslu landsmanna. Ekki er þó alveg eins bjart framundan en spá Íslandsbanka gerir ráð fyrir 4,3% hagvexti á þessu ári sem er þó um tvöfalt meiri vöxtur en gert er ráð fyrir annars staðar á Vesturlöndum og rúmlega helmingur á við hagvöxt víða í Asíu. Árið 2007 er hins vegar gert ráð fyrir stöðnun í landsframleiðslu og jafnvel neikvæðum hagvexti. Jón Bjarki segir eitthvað draga úr vexti fjárfestinga og að fjárfesting í stóriðju verði eitthvað minni heldur en á fyrra ári. Þá sjái fyrir mettunaráhrif í einkaneyslu en gríðarlegur vöxtur hafi verið í henni í fyrra. Ekki er þó um viðvarandi ástand að ræða en árið 2008 er gert ráð fyrir að hagvöxtur aukist á ný og verði um eða yfir 3% árin 2008 og 2009. Ekki er gert ráð fyrir fleiri stóriðjuframkvæmdum í hagvaxtarspá fyrir árin 2008 og 2009 þannig að ef af þeim áformum verður eykst hagvöxtur í samræmi við stærð framkvæmda. Og spár um minni hagvöxt á næsta ári gera ekki ráð fyrir auknum stóriðjuframkvæmdum. Komi þær til má gera ráð fyrir enn meiri hagvexti á næstu árum.
Fréttir Innlent Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum Innlent Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Innlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Fleiri fréttir Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Sjá meira