Níu létust í rútuslysi í Svíþjóð 27. janúar 2006 18:08
Í það minnsta níu manns biðu bana og tugir slösuðust í alvarlegu rútuslysi í Mið-Svíþjóð um hádegisleytið í dag. Fimmtíu farþegar voru um borð í rútunni sem virðist hafa runnið af ísilagðri hraðbrautinni á mikilli ferð. Enn liggur ekki nákvæmlega fyrir hvað gerðist en svo virðist sem ökumaður rútunnar hafi misst stjórn á henni í hálkunni svo hún hafnaði á hvolfi ofan í skurði. Rútan var á leið frá Skövde til Stokkhólms með 50 manns sem hugðust bregða sér í leikhús í höfuðborginni. Hópurinn átti um það bil 100 kílómetra ófarna þegar slysið varð. Þegar sjúkralið kom á vettvang var aðkoman hræðileg, rútan var á hvolfi og hafði þakið lagst saman að mestu. Átta biðu bana í slysinu en 45 voru fluttir á sjúkrahús í Örebro og Eskilstuna, þar af voru 20 alvarlega slasaðir. Drjúga stund tók að losa fólkið úr flakinu en síðdegis hafði tekist að ná öllum út. Undir kvöld tókst slökkviliði að lyfta flaki rútunnar og vonast er til að þannig verði hægt að ná út ökurita hennar svo orsakir slyssins verði ljósari.
Erlent Fréttir Mest lesið Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Erlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Góðkunningjar lögreglu grunaðir í stóru dópmáli Innlent Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Erlent Vara dýraeigendur við: Gruna að eitrað hafi verið fyrir tveimur dýrum Innlent Neitar að hafa beitt fósturbörnin á Gauksstöðum ofbeldi Innlent Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Innlent Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Erlent Betur fór en á horfðist á Mývatni: Lenti á þvervegi og tókst á loft Innlent Fleiri fréttir Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Sjá meira