Allt að 54% verðmunur á matarkörfunni 23. janúar 2006 22:46 MYND/Sigurður Jökull
Það getur munað yfir helmingi á matvörukörfunni eftir því hvar verslað er. Þetta kemur fram í verðlagskönnun sem ASÍ gerði í gær. Verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands kannaði verð í matvöruverslunum á höfuðborgarsvæðinu og kom í ljós að munað gat allt að fimmtíu og fjórum prósentum á verði vörukörfunnar. Ódýrust var vörukarfan í verslun Bónus þar sem hún kostaði tæpar 3.300 krónur en dýrust var hún í verslun Tíu-ellefu en þar var vörukarfan á rúmar 5.000 krónur. Í matarkörfunni eru nítján algengar neysluvörur heimilanna eins og mjólkurvörur, kjöt, kaffi, brauð, ávextir og grænmeti. Í mörgum tilfellum var lítill munur á sömu vörum á milli matvöruverslana. Þannig munaði innan við fjórum krónum á verði þrettán vöruliða í körfu verslunar Bónus og verslun Krónunnar. Einnig munaði innan við fjórum krónum á 12 vöruliðum í verslun Bónusar og verslun Kaskó. Könnunin var gerð í ellefu verslunum á höfuðborgarsvæðinu en ekki reyndist unnt að birta niðurstöður úr verslun Nettó í Mjódd þar sem rökstuddur grunur lék á að starfsmenn þar hafi reynt að hafa óeðlileg áhrif á niðurstöðu könnunarinnar.
Fréttir Innlent Mest lesið Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Fleiri fréttir „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Sjá meira