Ferðaáætlun 20 þúsund farþega raskast 23. janúar 2006 21:09 Strandaglópar á Kastrup-flugvelli. MYND/AP
Ferðaáætlun 20 þúsund farþega SAS-flugfélagsins í Danmörku og Noregi hefur raskast í dag þar sem flugmenn félagsins í báðum löndum hafa ýmist lagt niður vinnu eða tilkynnt sig veika. Flugmenn vilja með þessum aðgerðum mótmæla niðurskurði hjá félaginu. Um það bil 150 danskir flugmenn hjá SAS lögðu niður vinnu í dag og rúmlega 50 vinnufélagar þeirra hjá SAS í Noregi tilkynntu sig veika. Óvíst er hvenær þeir mæta aftur til starfa. Flugfélagið hefur þurft að aflýsa að minnsta kosti 270 flugferðum til og frá Kastrup flugvelli í Kaupmannahöfn. Flugmenn SAS afréðu að grípa til þessara aðgerða vegna fyrirhugaðra breytinga á kjörum þeirra. Einnig hefur verið á kreiki sá orðrómur að einhverjum flugmönnum verði sagt upp. Flug um Kastrup flugvöll var að komast í samt lag í morgun eftir að aflýsa þurfti flugferðum um helgina vegna óveðurs sem þá geisaði. Það er því óhætt að fullyrða að farþegar SAS í Danmörku hafi ekki haft neina þolinmæði þegar kom að verkfallsaðgerðum flugmannanna í dag. Verð hlutabréfa í SAS hefur lækkað um 4% í dag vegna aðgerða flugmannanna. Jens Langergaard, talsmaður SAS, segir aðgerðir flugmannanna stríða gegn samkomulagi þeirra og félagsins og því hafi ekki verið boðað til viðræðna í deilunni.
Erlent Fréttir Mest lesið Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Ölduselsskóla skipt út fyrir Seljaskóla Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Samið við Icelandair um flug til Ísafjarðar Innlent Kallar aðgerðirnar leiktjöld og varar við verðstýringu Innlent Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Erlent Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Erlent CNN og ABC fjalla um Eyjaflugið Innlent „Vélin að bila og hún stingur upp á að við skiptum um áklæði“ Innlent Fleiri fréttir Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Sjá meira