Tekist á um örlög fjögurra ára telpu 23. janúar 2006 20:25
Örlög fjögurra ára norskrar telpu sem liggur í dauðadái eru nú bitbein lækna og ástvina hennar. Málið hefur vakið mikla athygli í Noregi, ekki síst eftir að Björgvinjarbiskup skarst í leikinn. Kristina litla Hjartåker var á ferðalagi með móður sinni í september síðastliðnum þegar aurskriða skall á bíl þeirra. Móðir Kristinu beið bana en sjálf hefur hún legið meðvitundarlaus í öndunarvél á sjúkrahúsi í Björgvin síðan slysið varði. Í síðustu viku komust læknar telpunnar að þeirri niðurstöðu að engin von væri um að hún kæmist aftur til meðvitundar og því hugðust þeir taka úr sambandi útbúnaðinn sem hélt í henni lífinu. Við það vildi faðir hennar, hins vegar ekki una og voru þá ekki aðrir kostir í stöðunni en að fara með málið fyrir dómstóla. Málið hefur vakið athygli og deilur í Noregi enda tekist á um hinstu rök tilverunnar, réttinn til að lifa eða deyja. Dómstóllinn átti að kveða upp úrskurð sinn í dag en í gærkvöld tók málið hins vegar alveg nýja stefnu þegar Ole Hagesæther, biskup í Björgvin, skarst í leikinn og fékk lækna og fjölskyldu stúlkunnar til að reyna til þrautar að leysa ágreininginn, án íhlutunar dómstóla. Búist er við að þau komist að niðurstöðu eftir nokkra daga en þangað til munu þau ekkert tjá sig um málið.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Erlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira