Frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða 23. janúar 2006 16:29 Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra. MYND/E.Ól.
Samkvæmt nýju frumvarpi sjávarútvegsráðherra til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða er lagt til að sett verði hámark á samanlagða krókaaflahlutdeild þannig að enginn hafi yfir meiru að ráða en 6% af krókaaflahlutdeild í þorski, 9% krókaaflahlutdeild í ýsu og 6% af heildarverðmæti krókaaflahlutdeildar. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að ljóst sé að mikil sameining krókaaflahlutdeildar h afi orðið og ástæða til að setja takmarkanir þannig að krókaaflahlutdeildir dreifist á fleiri fyrirtæki og þar með sjávarbyggðir. Samkvæmt gildandi ákvæði eru settar takmarkanir á samanlagða aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila í fimm helstu tegundum botnfisks, auk síldar, loðnu og úthafsrækju og miðast hámarkið við 12% í þorski og 35% í karfa en 20% í öðrum tegundum. Þá segir í lögunumað samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa megi aldrei nema meira en 12% af heildarverðmæti aflahlutdeildar allra tegunda sem sæta ákvörðun um heildarafla. Fyrrgreind takmörkun tekur einnig til krókaaflahlutdeildar en hér er lagt til að auk þessa verði sétt sérstakt hámark á samanlagða krókaaflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila. Ennfremur er lagt til í frumvarpinu að unnt verði með rafrænum hætti að flytja aflamark milli fiskiskipa á einfaldari hátt en nú tíðkast. Einnig er lagt til að fella úr gildi veiðiskyldu úthafsrækju og að veiðigjald miðist við afla en ekki úthlutaðar aflaheimildir. Þetta er lagt til vegna erfiðleika sem séu uppi í veiðum og vinnslu úthafsrækju.
Fréttir Innlent Mest lesið Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Erlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Segir upp eftir tvær vikur í starfi Innlent Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi Innlent Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Erlent Fleiri fréttir „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Sjá meira