Tilraunir með snjóruðningsbíl sem dreifir saltpækli 16. janúar 2006 20:59
Það hefur verið þæfingsfærð í Reykjavík og nágrenni undanfarna daga og verður svo enn um sinn. Snjóruðningsdeildir Vegagerðarinnar og Reykjavíkurborgar eru við vinnu nánast allan sólarhringinn. Vegagerðinn hefur meðal annars í notkun trukk einn mikinn sem er nýjung í baráttunni við fannfergið. Auk þess að hafa framan á sér stóra tönn til að ryðja snjó hefur hann tuttugu þúsund lítra tank með saltpækli á pallinum. Pæklinum er dreift yfir vegi og götur með tölvustýrðu kerfi, og hefur ýmsa kosti fram yfir þurrsaltið. Saltinnihald pækilsins er ekki nema tuttugu prósent, hitt er vatn. Þetta veldur auðvitað margfalt minni saltmengun. Vegagerðin og Reykjavíkurborg hafa í mörg ár unnið að því að minnka saltnotkun, meðal annars með pækilsblöndum og er trukkurinn mikli tilraunaverkefni í þá átt. Einnig þykir pækillinn duga mjög vel á hálku sem oft er á morgnana. Hann virkar mjög fljótt og vel á ísinn. Þá er það kostur við bílinn að hann hentar mjög vel til þess að ryðja og salta veginn til Keflavíkur. Bílar sem dreifa þurrsalti mega ekki aka mikið yfir sextíu kílómetra hraða. Pækilbíllinn getur hinsvegar dreift á áttatíu kílómetra hraða, og tefur því ekki umferðina.
Fréttir Innlent Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Bilun hjá Teya olli löngum röðum Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira