Of snemmt að segja hvort loðnustofninn sé hruninn 11. janúar 2006 08:00 MYND/365
Forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar segir of snemmt að kveða upp úr um það hvort loðnustofninn sé hruninn. Hann hefur engu að síður áhyggjur af því að engin loðna hafi fundist og segir að verulegt magn þurfi að finnast af henni til þess að hægt sé að mæla með veiðum. Skip á vegum Hafrannsóknarstofnunarinnar fóru í loðnuleit í síðustu viku. Leitað var bæði á bæði djúp- og grunnsævi norður af landinu og í Grænlandssundi án þess að loðna fyndist. Þetta veldur mönnum áhyggjum og Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður og fiskifræðingur, sagði á NFS í gær að loðnustofninn væri hugsanlega hruninn. Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir of snemmt að kveða upp stóradóm varðandi loðnustofninn. Hann segir stofnunina oft hafa lent í þeim aðstæðum að vera ekki búin að finna loðnuna til að veiða hana, hvað þá mæla hana. Það breyti hins vegar ekki því að stofnunin hafi verið með sérstaklega mikinn viðbúnað bæði fyrir jól og nú í janúar til þess að fá botn í málið, en án árangurs. Það gefi fullt tilefni til að hafa áhyggjur af stöðunni. Jóhann nefnir tvær hugsanlegar ástæður fyrir því að loðnan finnst ekki. Annars vegar geti verið um það að ræða að stofninn sé orðinn svo lítill að hann mælist ekki og sé ekki kominn inn á landgrunnið norðanlands og það hafi ekki verið nægileg viðkoma til að standa undir veiðstofninum. Hins vegar geti verið að umhverfisskilyrði hafi svo mikil áhrif á gönguhegðun loðnustofnsins að göngurnar séu síðbúnar. Skip á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar munu halda áfram leit fram í febrúar ef með þarf en ef ekkert finnst af loðnu er ljóst að stofnunin getur ekki mælt með veiðum úr stofninum. Jóhann segir út úr myndinni að mæla með veiðum fyrr en stofnunin hafi mælt verulegt magn af loðnu, en nýtingarstefnan hér á landi gangi út á að fara varlega í þessum efnum.
Fréttir Innlent Mest lesið Möguleg tengsl við heilabilun Innlent Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Innlent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Innlent „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ Innlent Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn Innlent Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Erlent Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Erlent Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Innlent Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Innlent Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Fresta haustfundi vegna alvarlegs slyss Hló að vitnisburði sambýliskonunnar Tilboð hrikalega hátt yfir kostnaðaráætlun Kona með alvarlega áverka eftir líkamsárás Brast í grát þegar hún lýsti aðkomu að látnum bróður Möguleg tengsl við heilabilun Skora á borgina að afturkalla uppsagnir á samningum við listamenn Brynhildur nýr formaður og Gísli Marteinn í stjórn „Enn ein vondu tíðindin af þessu máli“ Kókaínið hafi verið lykilþáttur í vinskapnum Verðbólga, uppsagnir og mikil notkun svefnlyfja Forstjórar leita lausna Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Sýklalyfjanotkun í dýrum jókst um rúm tuttugu prósent „Ég held ég keyri þetta ekkert aftur í bráð“ Aðalmeðferð hafin vegna meints manndráps á Kársnesi „Ég hélt að svefnlyfin væru að hjálpa henni“ „Dýr geta augljóslega ekki sjálf leitað réttar síns“ Segir upp eftir tvær vikur í starfi Lægð upp að landinu og önnur dýpri á morgun Tólf með réttarstöðu sakbornings vegna andláts á Stuðlum Einn stöðvaður sem var að „drifta“ á hringtorgi Vinnuvél var ekið upp undir Bústaðavegsbrú Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Sjá meira