Meirihlutinn í Kópavogi boðar til funda til að finna lausn á vandamálum leiksskólanna 5. janúar 2006 18:29
Bæjarfulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi hafa ákveðið að bjóða fulltrúum starfsmanna á leikskólum, formönnum foreldrafélaga og fulltrúum leiksskólakennara í Leiksskólum Kópavogs til viðræðna um ástandið í leiksskólum bæjarins. Ráðgert er að funda með með fulltrúum hvers hóps fyrir sig á morgun og á mánudag. Þetta kemur fram í tilkynningu meirihlutans í Kópavogi. Tilkynningin er svohljóðandi: Tilkynning frá bæjarfulltrúum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Kópavogi Undanfarið hafa Kópavogsbæ borist uppsagnir starfsmanna á leikskólum og í kjölfarið hafa foreldrar látið í ljós óánægju með að bæjaryfirvöld skuli ekki gera betur grein fyrir því á hvern hátt þau munu bregðast við þessum vanda sem nú steðjar að. Þess skal getið að bæjarstjóri hefur ítrekað getið þess opinberlega að tilkynnt verði um aðgerðir í kjaramálum starfsmanna leikskóla eftir að haldin hefur verið launaráðstefna sveitarfélaganna 20. janúar nk. Vegna augljósrar og almennrar óánægju hagsmunaaðila með ástand leikskólamála hélt meirihlutinn í Kópavogi fund í hádeginu 5. janúar. Samþykkt var að bjóða fulltrúum starfsmanna á leikskólum, formönnum foreldrafélaga og fulltrúum leikskólakennara í Leikskólum Kópavogs til viðræðna um ástandið í leikskólum bæjarins. Áætlað er að halda fundi með fulltrúum hvers hóps fyrir sig á föstudaginn 6. janúar og á mánudaginn 9. janúar. Vonast er til þess að fundirnir leiði af sér gagnkvæman skilning og að óvissu um stöðu leikskólamála verði eytt. Fundunum er ætlað að kynna þær leiðir sem meirihlutinn vill fara til þess að tryggja áframhaldandi þjónustustig leikskólanna til frambúðar. Kópavogi, 5. janúar 2006.
Mest lesið Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Erlent Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Innlent „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Innlent Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Innlent Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Erlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Innlent Posarnir komnir í lag á ný Innlent Bandaríkjaher gerði árásir á þrjú írönsk skip Erlent Fleiri fréttir „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Sjá meira