Fuglaflensan breiðist hratt út 24. febrúar 2006 20:15
Fjölmörg ný fuglaflensutilfelli, af hinum banvæna H5N1-stofni, voru staðfest víða í Evrópu í dag. Nú er óttast að alifuglar í Þýskalandi og Frakklandi hafi drepist af völdum veirunnnar. Í Þýkalandi hafa nú á annað hundrað fuglaflensutilfelli verið staðfest í villtum fuglum og er nú óttast að H5N1 stofninn hafi stungið sér niður í alifuglum í landinum. Sömu sögu er að segja frá Frakklandi. Fuglaflensa greindist þar í villtum fuglum í síðustu viku og staðfest var í dag að hún hefði greinst í fuglum á kalkúnabúi. Níutíu prósent kalkúnanna drápust að sögn dýralæknis, en þó vilja yfirvöld enn ekki staðfesta hvort um er að ræða banvæna stofn flesunnar H5N1, en í nágrenni kalkúnabúsins eru tjarnir sem laða að villta fugla. Alifuglaiðnaðurinn í Frakklandi er sá stærsti innan Evrópusambandsins með um 200 þúsund bú og því fjárhagslegir hagmundir í hættu. Nú þegar finna franskir kaupmenn fyrir áhrifunum. Í dag bárust einnig fréttir af því að þrír villtir fuglar í Hong Kong hefðu greinst með banvæna afbrigði fuglaflensunnar, fyrstu tilfellin í Slóvakíu hafa verið staðfest, sem og að veiran hafi drepið villta fugla í Georgíu og Suður Rússlandi. Þar hafa sautján þorp verið sett í einangrun og 12 þúsund fuglar verið drepnir. Bændur á svæðinu geta einungis vonað það besta. Enn er litið á vírusinn sem fuglasjúkdóm og hann smitast ekki auðveldlega í menn. Tugir milljóna fugla víðs vegar um heimsbyggðina hafi sýkst af veirunni frá árinu 2003, þegar tilkynnt var um fyrstu tilfellin í Suðaustur Asíu. Staðfest mannslát af völdum veirunnar eru á annað hundrað.
Erlent Fréttir Mest lesið Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Innlent Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Innlent Annar maður skotinn til bana af ICE Erlent Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Innlent Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ Sjá meira