Litlu munaði í baráttunni um fyrsta sætið 5. nóvember 2006 18:30
Gunnar Svavarsson, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, varð í fyrsta sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi, eftir spennandi kosningavöku í gærkvöldi og skaust þar með upp fyrir þrjá sitjandi þingmenn. Þingmennirnir Katrín Júlíusdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir urðu í öðru og þriðja sæti en Valdimar Leó Friðriksson náði ekki kjöri í fyrstu átta sætin. Mikil eftirvænting ríkti á kosningavöku Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi þar sem frambjóðendur og stuðningsmenn þeirra komu saman á Fjörukránni í Hafnarfirði. Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður, Gunnar Svavarsson, forseti bæjarstjórnar Hafnarfjarðar og Árni Páll Árnason, lögmaður sóttust öll eftir fyrsta sætinu. Spennan var því mikil þegar fyrstu tölur voru lesnar skömmu fyrir klukkan níu í gærkvöldi en þá hafði um þriðjungur atkvæða verið talinn. Þá kom í ljós að Gunnar var í fyrsta sætinu, Katrín í öðru og Þórunn í því þriðja. Gunnar skýrir árangur sinn með því að kjósendur Samfylkingarinnar þekki til verka hennar í Hafnarfirði og viti að hún komi málum áfram. Þegar tölur bárust öðru sinni var Gunnar fallinn úr fyrsta sætinu í það þriðja og Þórunn komin í það fyrsta. Þegar búið var að telja öll atkvæðin nema 400 utankjörfundaratkvæði, var Gunnar hins vegar kominn aftur í fyrsta sætið, en Þórunni vantaði bara 19 atkvæði til að ná sætinu af honum. Að lokum fór það síðan svo að Gunnar hélt fyrsta sætinu, með aðeins 46 atkvæða forskoti á Þórunni. Þórunn segist sætta sig við úrslitin. Það sé hins vegar ljóst að hart hafi verið barist og blokkir myndast milli stóru sveitarfélaganna, Hafnarfjarðar og Kópavogs, en sjálf býr Þórunn í Garðabæ. Hún sagði mikið um hrepparíg í Suðvesturkjördæmi. Katrín Júlíusdóttir fékk góða kosningu í annað sætið og var aldrei ógnað þar. Hún segist hafa ákveðið að keppa ekki um forystusætið þessu að þessu sinni og e.t.v. hefði það skilað henni þessum árangri í prófkjörinu og hún vonaði að henni tækist að reynast jafnaðarstefnunni vel. Árni Páll Árnason lenti í fjórða sæti og Guðmundur Steingrímsson lenti í fimmta sætinu, sem verður að teljast baráttusæti flokksins, sem fékk fjóra þingmenn í kjördæminu í síðustu kosningum. Valdimar Leó Friðriksson, sem kom inn á þing þegar Guðmundur Árni Stefánsson hætti á þingi, náði ekki einu af átta efstu sætunum.
Mest lesið „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Metfjöldi vill stíga á svið með Íslenska dansflokknum Faðirinn í hungurverkfalli í lokaðri móttökustöð og móðirin ein með börnin Aðeins tíu prósent sem leita til Stígamóta kæra ofbeldið Spyr hvort að Rúv finnist hún „hundleiðinleg t***a“ „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Maðurinn er fundinn Kerfið hafi brugðist Sjálfstæðismenn mynda bandalag á Akureyri Sundabraut og Fljótagöng verkefni innviðafélagsins Háværar flugvélar sem vöktu athygli í gær voru á æfingu „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Heiðu hafnað og fjöldi niðurfellinga heimilisofbeldismála hjá lögreglu Segir Heiðu hafa átt betra skilið Icelandair aflýsir flugferðum Fyrrverandi ráðherrar ræða alþjóðamálin Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Tvö pör handtekin grunuð um líkamsárásir Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Stóra verkefnið að vinna aftur traust borgarbúa Gríðarleg vonbrigði að reyndri konu sé ekki treyst Pétur Marteinsson kjörinn oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík Samfylkingin valdi sér borgarstjóraefni Valið á milli gömlu og nýju Samfylkingarinnar Gullhúðað afnám jafnlaunavottunar Tvöfalt fleiri aldraðir leituðu hjálpar vegna ofbeldis Vandræðagangur með skilaboð á versta tíma fyrir Heiðu Leita að öðrum til að taka við Ísafjarðarfluginu Allir hafi áhuga á Íslandi Biður Dóru Björt afsökunar eftir deilur um vetrarþjónustu Sjá meira