Vonskuveður víða í Evrópu 22. janúar 2006 12:45 Snjóað hefur í Japan eins og þessar kimono-klæddu konur fengu að kynnast. MYND/AP
Vonskuveður hefur geisað í Evrópu um helgina. Í Danmörku var Stórabeltisbrúnni lokað, í Noregi fuku hús um koll og í Úkraínu hefur tylft manna frosið í hel. Óhætt er að segja að kuldaboli sýni tennurnar um þessar mundir. Í gær mældist tæplega sjötíu gráðu frost í Síberíu en í Moskvu var talsvert hlýrra, aðeins mínus 32 gráður, en engu að síður hafa fimm manns króknað þar í hel. Sömu sögu er að segja frá Úkraínu þar sem tólf manns hafa látist og Lettlandi þar sem sex dóu úr kulda í gær. Þar hefur hitastigið ekki verið lægra í heila öld. Fárviðri geisaði í Norður-Noregi um helgina og fór meðal annars rafmagnið af Tromsö í dágóða stund vegna snjóþyngsla á raflínum. Í Helgeland fuku hús eins og eldspýtur í ofsaveðri og þar áttu vegfarendur fótum fjör að launa eins og sjá má. Ástandið í Danmörku var ekki mikið skárra. Þegar grýlukerti og íshröngl tók að hrynja úr burðarvírum Stórabeltisbrúarinnar, sem tengir Fjón og Sjáland, var ákveðið að loka fyrir umferð og því mynduðust margra kílómetra langar bílaraðir beggja vegna brúarinnar. Tók allt að tuttugu klukkustundir að losa fólk úr bifreiðum sínum. Flugumferð um Kastrup-flugvöll lá nánast niðri frá því í fyrrakvöld og langt fram eftir gærdeginum en þar sem veður hefur gengið mikið niður eru samgöngur um flugvöllinn komnar í samt lag. Sjálft óveðrið virðist sem sagt að baki en veðurfræðingar gera ráð fyrir að frosthörkur muni jafnvel færast í vöxt.
Erlent Fréttir Mest lesið „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Erlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Starfsemi friðarverðlaunahafa dæmd ólögleg í Rússlandi Bretar hvattir til að taka íslenskan þorsk fram yfir breskan Sjá meira