Innlent

Byko bauð ekki umfram gjaldskrá segir Ásdís Halla

Forstjóri Húsasmiðjunnar segir fyrirtækið hafa boðið umfram gjaldskrá í lóð Urriðaholts í Garðabæ eftir að hafa fengið þau skilaboð frá stjórn Urriðaholts að verðið réði úrslitum um hver fengi lóðina. Byko bauð ekki umfram gjaldskrá.

Ásdís Halla Bragadóttir forstjóri Byko segir ekkert undarlegt við það að Byko hafi fengið lóð Urriðaholts í Garðabæ, enda hafi sölutilboð Urriðaholts ekki falið í sér verðhugmyndir.

Steinn Logi Björnsson forstjóri Húsasmiðjunnar segir fyrirtækið hins vegar hafa fengið þau skilaboð frá stjórn Urriðaholts verð væri númer eitt, tvö og þrjú þegar kæmi að vali á því hver fengi lóðina. Því hafi Húsasmiðjan boðið umfram þá gjaldskrá sem Ásdís Halla segir að Byko hafi farið eftir. Geir Zoega, formaður stjórnar Urriðaholts segir þetta rangt hjá Steini Loga, tilboð fyrirtækjanna þriggja hafi verið sambærileg og Húsasmiðjan hafi ekki boðið umfram gjaldskránna sem Urriðaholt lagði fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×