Verð Húsasmiðjunnar áþekk vöruverði Bauhaus 9. mars 2006 18:30
Forstjóri Húsasmiðjunnar fullyrðir að vöruverð fyrirtækisins sé sambærilegt við verð Bauhaus og á tíðum lægra. Þá fullyrðir hann að Húsasmiðjan hafi boðið vel yfir uppsett verð í lóð Urriðaholts í Garðabæ, lóð sem Byko segist hafa fengið á uppsettu verði. Fáum var brugðið við þær fréttir að Borgarráð samþykkti einróma í dag að úthluta Bauhaus lóð við Úlfarsfell. Þróunarstjóri fyrirtækisins lét hafa eftir sér að fyrirtækið muni knýja verð á markaðnum niður um uþb tuttugu prósent þar sem Byko og Húsasmiðjan hafi fram til þessa haldið verði sínu 20 til 30 prósentum yfir eðlilegu markaðsverði. Forstjóri Húsasmiðjunnar segir það óígrundaða staðhæfingu. Telja má fullvíst að koma þýska risans á íslenskan markað muni hleypa nýju blóði í samkeppni á byggingavörumarkaðnum. Ekki gekk það þrautalaust hjá fyrirtækinu að afla sér lóðar á höfuðborgarsvæðinu. Í Garðabæ laut Bauhaus ásamt Húsasmiðjunni í grasið fyrir Byko eins og frægt er orðið. Ekki eru öll kurl komin til grafar varðandi hvernig það mál var útkljáð. Forstjóri Byko hefur sagt að fyrirtækið hafi borgað fyrir lóðina samkvæmt fyrirfram ákveðinni gjaldskrá. Forstjóri Urriðaholts sem seldi lóðina segir keppinautana hafa boðið sambærilegt verð. Þetta stangast á við fullyrðingu forstjóra Húsasmiðjunnar sem segir fyrirtækið og Bauhaus hafa boðið verð umfram gjaldskrá. Því má spyrja hvað Byko fékk lóðina á? Ekki náðist í forstjóra Byko í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira