Efla þarf Landhelgisgæsluna 17. mars 2006 19:04
Fyrir utan þær spurningar sem hafa vaknað varðandi varnarmál Íslands, atvinnumál á Suðurnesjum og rekstur Keflavíkurflugvallar er ljóst að gangskör þarf að gera hjá Landhelgisgæslunni. Ríkisstjórnin er í viðbragðsstöðu, segir forsætisráðherra, og ljóst að kaupa þarf nýjar þyrlur og stórefla björgunarsveitir.Flugbjörgunarsveit Varnarliðsins hefur bjargað á fjórða hundrað mannslífum frá árinu 1971, þegar sveitin hóf starfsemi í Keflavík.Það er ekkert í Varnarsamningnum sem kveður á um að varnarliðið veiti þessa aðstoð, sem reynst hefur svo mikilvæg gegnum tíðina, fyrir utan samkomulag sem gert var árið 1996, til fimm ára, og er löngu runnið úr gildi. Bandaríkjaher hefur séð til þess að fjórar björgunarþyrlur og ein til vara hafa verið til taks á Suðurnesjum. Þær geta farið hvenær sem er. Verða allavega farnar fyrir lok septembermánaðar samkvæmt tilskipun bandarískra stjórnvalda og ekki er vitað hvort átt er við daga eða mánuði í því sambandi.Eftir standa tvær þyrlur Landhelgisgæslunnar, SIF og LÍF, sem staðið hefur sundurtætt í flugskýli á Reykjavíkurflugvelli frá 13. febrúar.Útköll hafa í seinni tíð verið á bilinu 110 til 160 á ári. Flest í tengslum við leitar, björgunar og sjúkraflutninga bæði á hafi úti og inni á landi. Auk þess hafa SIF og LÍF sinnt hinum ýmsu verkefnum auk sjálfrar landhelgisgæslunnar.Ekki náðist í forstjóra Landhelgisgæslunnar í dag en innanbúðarmenn segjaljóst að ef ávallt eigi tvær þyrlur ávallt að vera til taks til björgunaraðgerða þurfi Landhelgisgæslan að eignast þrjár þyrlur til viðbótar, til að vera nokkuð örugg, fjórar til fimm ef gerð er sú krafa að öryggistig flugbjörgunar verði haldið í horfinum.Yfirvofandi sjálfstæði íslensku þjóðarinnar í björgunarmálum gæti því reynst dýrt, en að óbreyttu styttist óðum sá tími sem hægt verður að leita aðstoðar varnarliðsins á ögurstundu.
Mest lesið Stutt geti verið í kosningar Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fimm handteknir og grunaðir um skipulagningu hryðjuverks Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Eldur á Hellu Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira