Ekki riðið út frá Glaðheimum ef skipulagi verður breytt 25. janúar 2006 00:11 Félagssvæði Gusts í Glaðheimum. MYND/Vilhelm
Formaður hestamannafélagsins Gusts segir ljóst að ekki verði riðið út frá félagssvæði þess í Glaðheimum í framtíðinni ef ný tillaga bæjaryfirvalda að deiliskipulagi á reitum nærri svæðinu verður samþykkt. Formaðurinn er þó vongóður um að tekið verði tillit til athugasemda félagsins. Samfylkingin í Kópavogi efndi í fyrrakvöld til opins fundar þar sem Þóra Ásgeirsdóttir, formaður Gusts, greindi frá stöðu mála í tengslum við Gust. Bæjaryfirvöld hafa nú auglýst tillögu að nýju deiliskipulagi á þremur reitum, Hnoðraholti, Smalaholti og Rjúpnahæð, þar sem byggja á upp íbúðabyggð. Þessu er Gustsfólk mótfallið þar sem það segir þrengt enn frekar að sér ásamt því sem reiðleiðir verði bæði færðar til og jafnvel teknar alveg. Þóra segir alvarlegt fyrir hestamannafélagið ef tillögurnar ná fram að ganga athugasemdalaust. Þá verði ekki riðið meira út í Glaðheimum. Á hinn bóginn hafi hún enga trú á því að svo verði. Gustsfólk treysti því að bæjaryfirvöld sýni þeim skilning og vilji hafa það áfram á staðnum. Gustur hafi samning í Glaðheimum til 2038 og að sjálfsögðu sé ætlunin að vera þar út samningstímann. Við þetta bætist að hestamannafélagið tekst nú á við verktaka um lóðir í Glaðheimum, svokallaða uppkaupsmenn, en þeir hafa þegar keypt um 30 prósent hesthúsa á svæðinu. Þóra segir aðspurð að sú barátta geri félaginu einnig erfitt fyrir. Það sé alltaf erfitt þegar miklir peningar séu annars vegar. Hins vegar veiki þetta ekki Gustara því þeir séu frægir fyrir annað en að láta sundra sér. Þeir muni standa saman og koma sterkari út úr þessu. Forsvarsmenn Gusts hafa fundað með bæjaryfirvöldum vegna málsins og er tillögu frá bæjarstjóra umað lausn málsinsað væntainnan tveggja vikna.
Fréttir Innlent Mest lesið Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Innlent Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Innlent Árni Tómas Ragnarsson er látinn Innlent Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu Innlent „Annars verður ekkert eftir af þeim“ Erlent Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Innlent Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Innlent „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Innlent Áttu góðan og langan fund í dag Innlent Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Innlent Fleiri fréttir Lásu upp rangar lokatölur í Reykjavík „Afgerandi vísbendingar“ um veikingu AMOC kalli á stórauknar aðgerðir Árni Tómas Ragnarsson er látinn Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Eftirför endaði í alvarlegu bílslysi á Reykjanesbraut Rúmlega þúsund strikuðu yfir Heiðu „Aldrei verið sammála um stjórnmál“ Sjómenn hjá Eimskip boða verkföll Óvæntur ríkisstjórnarfundur í dag Áttu góðan og langan fund í dag Ætla að skipta Miðflokki út fyrir Framsókn Gaf börnum bjór í strætó og hvarf Meirihlutar féllu víða en héldu velli annars staðar Niðurstaðan merki ekki endalok Pírata Lokatölur úr Dalvíkurbyggð: Meirihlutinn heldur Hreinn meirihluti Vegvísis Konur meirihluti fulltrúa í Kópavogi, Árborg og Múlaþingi Vill að lýst verði yfir neyðarástandi Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Áfellisdómur fyrir ríkisstjórnina „Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“ Lokatölur í Bolungarvík: Máttur meyja og manna missir mann og meirihluta Meirihlutaviðræður í vikunni Lokatölur í Sveitarfélaginu Stykkishólmur: Óbreytt staða Hveitibrauðsdagar ríkisstjórnarinnar endanlega búnir Lokatölur í Húnabyggð: D listinn bætir við sig og nær meirihluta Lokatölur á Skagaströnd: Hjón náðu inn fyrir sitt hvorn listann Lokatölur í Langanesbyggð: Oddvitinn síðastur inn í óbundnum kosningum Bein útsending: Kosningaveisla á Sprengisandi Stefán Pálsson og Vinstrið sleikja sárin Sjá meira