Hlutfall vinnuslysa á Austurlandi eykst umtalsvert 4. apríl 2006 22:21 Frá Kárahnjúkum. MYND/GVA
Um þriðjungur vinnuslysa hér á landi hefur verið á Austurlandi undanfarin tvö ár samkvæmt tölum Vinnueftirlitsins. Hefur hlutfall þeirra af öllum vinnuslysum í landinu aukist umtalsvert frá aldamótum. Þá leiða tölur Vinnueftirlitsins í ljós að byggingariðnaðurinn er hættulegasta starfsgreinin. Vinnueftirlitð heldur utan um tölur um vinnuslys hér á landi og birtir meðal annars í ársskýrslum sínum. Þar er þó aðeins um að ræða tilkynnt vinnuslys sem leiða til þess að starfsmaður er fjarri vinnu í að minnsta kosti einn dag eða eru svo alvarleg að varanlegt heilsutjón hlýst af. Þegar rýnt er í slysatölur kemur í ljós að fjöldi slasaðra í vinnuslysum er nokkuð svipaður síðustu ár, á bilinu 1200 til 1400 manns en árið 2004 sker sig úr þar sem hátt í 1800 slösuðust í vinnuslysum. Þá leiða tölur Vinnueftirlitsins í ljós að hlutfall slysa á Austurlandi af öllum vinnuslysum á landinu hefur aukist töluvert síðastliðin tvö ár frá árunum. Árið 2000 voru um fimm prósent vinnuslysa á landinu á Austurlandi en í fyrra og hitteðfyrra er hlutfallið um þrjátíu prósent. Þessa aukningu má væntanlega rekja til stóriðjuframkvæmdanna fyrir austan. Þegar horft er til þess hvaða starfsgreinar eru hættulegastar kemur í ljós að það er byggingariðnaðurinn sem trónir þar á toppnum enda fjölmenn grein þar sem unnið er við erfiðar aðstæður. Ríflega tvö þúsund vinnuslys í þeim geira voru tilkynnt til Vinnueftirlitsins sem er töluvert meira en í málmiðnaði og fiskiðnaði sem koma þar á eftir. Tölur um banaslys síðustu 20 ár sýna að flest hafa orðið í bygginariðnaði, eða 12, og þar á eftir koma málmiðnaður og fiskiðnaður með átta banaslys frá 1985. Banaslysum hefur hins vegar ekki fjölgað á síðustu tveimur árum samfara auknum framkvæmdum eins og búast mætti við því þau voru tvö árið 2004 og þrjú í fyrra sem er svipað og árin á undan.
Fréttir Innlent Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Sjá meira