Lögreglan varar við gylliboðum um vel launuð sölustörf 3. nóvember 2006 17:28 MYND/NFS
Ríkislögreglustjóri varar við gylliboðum um atvinnu sem auglýst eru víða á netsíðum um þessar mundir. Fólk sem telur sig vera að ráða sig til markaðsverkefna eða sölustarfa hefur setið eftir með sárt ennið þegar upp kemst að bankareikningar þeirra voru notaðir til peningaþvættis og auðgunarbrota. Grandalaust fólk situr uppi með reikninginn.Í stuttu máli sagt þá er beitt þeirri aðferð að boðin er atvinna við markaðsverkefni og sölumennsku á Internetinu og er ráðgert að starfsemin fari fram þar. Í atvinnutilboðinu eru notuð nöfn fyrirtækja sem þekkt eru víða um heim en verkefnið sjálft er ekki skilgreint frekar. Þeir sem setja sig í samband við þá sem bjóða þessa vinnu fá að vita að þeir geti vænst fastrar þóknunar, eða frá 15 evrum á tímann og allt að 2000 evrum á viku, auk 5 - 8 % þóknunar af sölu.Þegar atvinnutilboðinu hefur verið tekið er beðið um að tilgreina bankareikning svo hægt sé að opna fyrir viðskiptin. Í kjölfarið og án frekari skýringar er lagt inn á bankareikninginn nokkur fjárhæð sem numið getur tugumþúsunda króna. Er viðtakandinn beðinn um að senda hana öðrum, oftast tveimur eða fleirum sem nafngreindir eru, að frádreginni 5% þóknun. Aðeins eru gefnar lágmarksupplýsingar um viðtakanda og eru peningarnir sendir með órekjanlegum bankamillifærslum.Skömmu eftir þessi viðskipti er haft samband frá bankanum sem sendi peningana þeim sem taldi sig vera að taka að sér markaðs- og sölustörf og er hann krafinn endurgreiðslu fjárhæðar sem lögð var inn á reikninginn. Hafi komið í ljós að peningarnir voru afrakstur auðgunarbrots.Þessi aðferð, sem gerir ráð fyrir að nota saklaust fólk til þess að koma illafengnu fé undan, getur haft í för með sér óþægindi og tjón vegna krafna frá banka sem millifærði peningana á bankareikninginn. Ef fólk tekur þátt í þessum viðskiptum þegar því má vera ljóst að þarna liggur sviksemi að baki kann það að baka sér refsiábyrgð fyrir liðveislu í auðgunarbroti og / eða með því að þvætta peninga. Hér á landi eru tvö nýleg dæmi um atvik af þessu tagi.
Mest lesið Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Innlent Játar innbrot í búin Innlent Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Erlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Innlent Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Innlent Fleiri fréttir „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Segir aðgerð 86 ekki lokið: „Það sem við hófum á hafi úti munum við halda áfram í réttarsölum“ Sjá meira