Tugir eftirskjálfta en ekkert tjón 6. mars 2006 18:25
Snarpur jarðskjálfti, 4,6 á Richter, varð austur af Krísuvík um klukkan hálf þrjú í dag. Jarðskjálftinn varð á mjög virku svæði, um 3 kílómetra austur af Kleifarvatni eða um 7,7 kílómetra austnorðaustur af Krísuvík, á rúmlega sjö kílómetra dýpi. Nokkuð af eftirskjálftum hefur fylgt í kjölfarið. Svæðið á Reykjanesinu þar sem skjálftinn varð í dag, er eitt af allra virkustu jarðskjálftasvæðum landsins. Svæðið er sérstakt að því leiti að þar eru bæði gosbelti og flekaskil. Norður-Ameríku og Evrasíuflekinn mætast þarna og Ísland gliðnar að meðaltali á flekamótunum um einn sentimetra á ári. Gliðnunin verður hins vegar í stærri stökkum, með tilheyrandi jarðskjálftavirkni. Ekki er hægt að leggja neitt út af jarðskjálftanum í dag um hugsanlegar jarðhræringar á svæðinu, né hinu að varðskjálfti af svipaðri stærð varð norður undan landinu í gær í hafinu nálægt Grímsey. Jarðskjálftar eru enda algegnir á báðum þessum stöðum. Á Reykjanesinu verða þeir hins vegar aldrei mjög stórir, fara sjaldan yfir fimm á Richter, þótt söguleg dæmi séu um stærri skjálfta. Um 1930 varð til dæmis skjáfti við Kleifarvatn sem var vel yfir sex á Richter. Jarðskjálftinn í dag fannst víða um suðvestanvert landið. Vel á öllu höfuðborgarsvæðinu, upp í Hvalfjörð og allt austur á Hvolsvöll. Hvorki er þó vitað um tjón á mannvirkjum né fólki.
Mest lesið Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sendi fjölskyldunni lista af skotmörkum í forgangsröð Erlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Innlent Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Fleiri fréttir Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Sjá meira