Frumvarp um æskulýðslög lyktar af lögregluríki og ofsóknaræði 8. mars 2006 16:53 MYND/Valli
Nýtt frumvarp um æskulýðslög lyktar af lögregluríki og ofsóknaræði, segir Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar. Í frumvarpinu er lagt til að allir þeir, sem sæki um vinnu sem varði æskulýðsmál, verði skylt að leggja fram sakavottorð. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi á dögunum en það var samið af nefnd sem flokkssystir ráðherrans, Ásta Möller, var í forsvari fyrir. Frumvarpið var sent til umfjöllunar í menntamálanefnd þar sem Mörður á meðal annarra sæti, og hefur hann ýmislegt út á frumvarpið að setja. Aðspurður hvort ekki sé eðlilegt að lög sem snúa að börnum og öryggi þeirra séu hert, í ljósi þess að veruleg aukning hefur orðið í kynferðisbrotamálum gegn börnum á undanförnum árum, segist Mörður telja að barnaverndarlögin séu alveg nógu ströng. Þar sé yfirmönnum heimilt að sjá sakavottorð, með leyfi umsækjandans. „Yfirmenn eiga að vera það klárir að þeir sjái fólk út. Það á að vera nóg," segir Mörður. Einnig er lagt til í frumvarpinu að þeir sem fengið hafa fíkniefnadóma fái ekki vinnu við æskulýðsstörf. Merði finnst afar undarlegt að sá hópur sé tekinn sérstaklega út hvað það varðar, en ekki til að mynda þeir sem fengið hafa dóma fyrir morð eða nauðgun. Þeir sem eigi fortíð í fíkniefnaheiminum séu líka í mörgum tilvikum vel til þess fallnir að fræða æskuna um þá vá sem honum fylgi, eins og mörg dæmi sanni.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira