Framtíð NATO í húfi 7. febrúar 2006 20:47 MYND/AP
Aðgerðir Atlantshafsbandalagsins í hættulegustu héröðum Afganistans á næstunni gætu ráðið úrslitum um framtíð bandalagsins sem hernaðarafls. Stefnt er að því að NATO sjái um öryggisgæslu í þrem fjórðu hlutum landsins fyrir árslok. Starfsemi Íslendinga í landinu verður áfram þar sem ástandið er best. Það sem fyrst var hugsað sem eins konar leið fyrir Evrópulönd til að styðja baráttu Bandaríkjanna gegn hryðjuverkum, án þess að senda mannafla til Íraks, gæti ráðið úrslitum um hlutverk NATO í heiminum á næstu árum og áratugum. Hingað til hafa verkefni NATO í Afghanistan einskorðast við norður- og vesturhluta landsins, en Bandaríkin hafa nær alfarið séð um aðgerðir í suðri. Þar eru helstu vígi uppreisnarmanna, og það virðist alveg sama hve margir eru felldir, nýir spretta upp jafnharðan eins og gorkúlur. Nú standa fyrir dyrum víðtækar aðgerðir þar sem NATO munu að mestu sjá um, og ef þær heppnast vel verður fyrst hægt að skipuleggja brottfluttning erlendra hersveita frá Afghanistan. Í síðustu viku samþykktu Hollendingar að senda fjórtán hundruð hermenn í viðbót til Afghanistan og á næstunni er búist við að fleiri þjóðir innan NATO fari að fordæmi þeirra. Á sama tíma og Bandaríkjamenn hyggjast senda um tvö þúsund hermenn heim frá Afghanistan, stendur til að fjölga hermönnum NATO um sex þúsund í allt á næstu mánuðunum. Þá fara aðgerðirnar í suður- Afghanistan á fullt skrið. Verkefnið er eitt stærsta hernaðarverkefni sem Atlantshafsbandalagið hefur ráðist í og er mikil prófraun. Það mun hafa mikið að segja um framtíð NATO sem hernaðarafls. Íslendingar munu eins og aðrar þjóðir innan bandalagsins taka að sér viðameira hlutverk í Afghanistan, eins og flestar þjóðir innan NATO. Starfsemi Íslendinga verður þó eins og áður bundin við þau svæði þar sem ástandi er stöðugast.
Erlent Fréttir Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent Bein útsending: Valkyrjurnar halda blaðamannafund Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Íslendingar hafna aðildarviðræðum við Evrópusambandið Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Skoraði á Sigmund Davíð að flytja bókun 35 Innlent „Stórkostlegur ósigur“ bæði Samfylkingar og Viðreisnar Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Fleiri fréttir Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Milljónir í sekt fyrir að veðja á ræður forsetans Minnst þrjátíu og sjö látin eftir árás Rússa Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Kalla bandaríska sendiherrann á teppið vegna svívirðinga um ráðherra Hver er Hákon VIII Noregskonungur? Sagður hafa logið árum saman um morðið á Tupac Er sagður hafa lagt spilin á borðið varðandi Úkraínu Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Haraldur V Noregskonungur er látinn Breytti heiti Ontaríó-vatns í Ameríku-vatn Óttast fleiri flóð vegna skriða í fjöllunum Ljúka greiningu á viðveru í Evrópu fyrr en til stóð „Slátrarinn í Bosníu“ Ratko Mladic látinn Rísandi stjarna AfD umkringd nýnasistum Staðgöngumóðir eignast „tvíbura“ með sitthvora foreldrana Varaði Rússa við því að ráðast á NATO Heilsu Haraldar hrakar enn Að minnsta kosti 165 eru látnir og yfir 1.500 saknað Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Harry og Meghan komin aftur eftir sex ára illdeilur Sjá meira