Alvarlegri áhrif gróðurhúsalofttegunda 30. janúar 2006 14:08
Aukin samþjöppun gróðurhúsalofttegunda getur haft alvarlegri áhrif en fyrr var talið að því er fram kemur í nýrri breskri skýrslu. Þar segir að litlar líkur séu á því að losun gróðurhúsalofttegunda verði haldið undir hættumörkum. Skýrslan fjallar um hvernig forðast beri hættuleg áhrif loftslagsbreytinga og er unnin fyrir bresk stjórnvöld. Þar segir að hækki meðalhiti jarðar um meira en tvær gráður á Celsíus gæti það orsakað bráðnun Grænlandsjökuls, hrun vistkerfa, víðfeðma hungursneyð og vatnsskort og miklan félags- og efnahagslegan skaða, einkum í þróunarlöndum. Evrópusambandið hefur samþykkt áætlun sem miðar að því að koma í veg fyrir að meðalhitinn hækki um rúmar tvær gráður en talið er að það dugi jafnvel ekki til þar sem hækkun um tvær gráður gæti valdið bráðnun Grænlandsjökuls. Í skýrslunni er safnað saman gögnum sem vísindamenn lögðu fram á ráðstefnu sem haldin var í Bretlandi í febrúar í fyrra. Þar kom fram að mikilvægt væri að skilgreina hvar mörkin væru varðandi losun gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið og meta hvernig ætti að koma í veg fyrir að að losun nái þeim. Umhverfisráðherra Breta segir niðurstöður skýrslunnar væntanlega áfall fyrir marga. Það sem hljóti helst að vekja ugg sé að vísindamenn hafi komist að þeirri niðurstöðu að þegar ákveðnum mörkum sé náð verði áhrifn óafturkræf. Rétt sé þó að taka fram að þróunin geti tekið þúsund ár. Einn helsti ráðgjafi bresku stjórnarinnar í loftslagsmálum sagði í samtali við breska ríkisútvarpið, BBC, að það yrði að leggja kalt mat á ástandið og sætta sig við það að ekkert ríki myndi loka fyrir orkuver sem útvegaði íbúum raforku til þess að takast á við þetta framtíðarvandamál.
Erlent Fréttir Mest lesið „Já, ég er dálítið reiður“ Innlent Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent Helgi Bjartur dæmdur í tólf mánaða fangelsi Innlent Sakborningar í Gufunesmálinu mættir í Landsrétt Innlent Skjálfti vegna Írisar innan Sjálfstæðisflokksins í Eyjum Innlent Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Erlent Hæstiréttur hlýðir ekki á Jón Þór Innlent Ók á móti umferð í Hvalfjarðargöng með lögregluna á hælunum Innlent Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Innlent Eimskip líta smyglið mjög alvarlegum augum Innlent Fleiri fréttir Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Sjá meira