Ofgnótt járns í heyi tengt riðu í sauðfé 3. apríl 2006 23:02 MYND/Vilhelm Gunnarsson
Sterkar vísbendingar eru um að magn járns og annarra snefilefna í heyi geti haft áhrif á riðu í sauðfé. Þetta kemur fram í rannsókn íslenskra vísindamanna undir stjórn Þorkels Jóhannessonar. Rannsóknarhópur á vegum embættis yfirdýralæknis hefur unnið að rannsóknum á heyi síðan 2001 og hefur borið saman magn járns, mangans, selens og annarra snefilefna í heyi frá bæjum þar sem riða hefur komið upp, þar sem hún hefur aldrei komið upp og bæjum þar sem skipt hefur verið um fé í kjölfar riðu. Kristín Björk Guðmundsdóttir, dýralæknir, er ein þeirra sem unnið hefur að rannsókninni. Hún segir niðurstöðurnar sterka vísbendingu um tengsl milli snefilefna í heyi og riðu í fé. Á svæðum þar sem riða hefur verið tíð er mikið magn járns í jarðvegi og þar af leiðandi í heyi. Hins vegar einkennir hátt hlutfall mangans í heyi þau svæði þar sem riða hefur aldrei komið upp. Járnmagn í íslenskum jarðvegi er mjög hátt víðast hvar, sérstaklega í mýrlendi. Sums staðar er það svo hátt að jaðrar við eitrunarmörk hjá plöntum. Kristín segir mjög mikilvægt að fylgja eftir þessum sterku vísbendingum um orsakir riðu. Sjúkdómurinn er einn sá algengasti í íslenskum húsdýrum og ákaflega kostnaðarsamur fyrir íslenskan landbúnað. Hún segir of snemmt að slá neinu föstu um niðurstöðurnar en að miðað við fjártjón og óhagræði sem fylgir riðu, sé mikið unnið ef hægt er með einhverjum hætti að komast að orsökum hans, svo að jafnvel verði hægt að uppræta hann.
Mest lesið Skrúðgangan aftur leyfð þrjátíu árum eftir hryllinginn Erlent Rafflugvélin jafnar stærð innanlandsvéla Icelandair Erlent Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Innlent Allt ætlaði um koll að keyra þegar grímuskylda var afnumin Erlent Heimili rýmd nærri herflugstöð Erlent Nýr sendiherra er Búi og kannast ekki við „þjóðarmorð á hvítum“ Erlent Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Hátt í þrjátíu drepnir í tveimur skotárásum Erlent Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Innlent Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Innlent Fleiri fréttir Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Sjá meira