Kampavínið hvarf í göngunum 6. desember 2006 12:30
Ekkert varð af því að þyrstir gestir gætu vætt kverkar sínar í kampavíni, til að fagna því að síðasta haftið í Kárahnjúkagöngum var rofið í gær, því kampavínið var horfið þegar til átti að taka. Nokkrir tugir gesta höfðu þá aftur lagt á sig klukkustundar ferð á hörðum bekkjum í hastri jarðlest í raka og hita því þeir þurftu frá að hverfa í fyradag eftir að risaborinn, sem átti að ljúka verkinu þá, bilaði. Í ljósi þeirrar reynslu var það að vonum að gestirnir biðu þess með enn meiri óþreyju en ella, að teiga kalt kampavínið áður en hossast yrði í lestinni til baka en þá fanst ekki dropi af víninu sem flutt hafði verið inn í göngin í fyrradag. Einu veigarnar sem fundust voru kók og appelsín en gestirnir fundu sig ekki í því að skála fyrir stórviðburði í viðlíka glundri, þannig að svipmót hátíðarhaldanna varð með nokkuð öðrum hætti en til stóð. Með öllu er óljóst hvað gerðist þarna í iðrum jarðar, 150 metrum undir yfirborði Þrælahálsins, í fyrrinótt en lausasagnir herma að óvenju bjart hafi verið yfir bormönnnunum sem unnu alla nóttina við að rífa borinn sem lokið hafði hlutverki sínu en þeim megin haftsins var kampavínið geymt.
Mest lesið Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Innlent Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Innlent Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Innlent Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Innlent Hvað segja veðbankarnir? Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Erlendir fjölmiðlar fylgjast með: Trump hafi þvingað Íslendinga í kjörklefana Erlent Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Innlent „Nú er komið að mér“ Erlent Fleiri fréttir Hvað segja veðbankarnir? Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Þurfti að halda áfram að vinna þrátt fyrir hættulegt ástand á meðgöngu Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Sjá meira