Brottrekinn forstjóri skili lúxusjeppanum 16. desember 2006 08:00 Hreinn Jakobsson taldi sig mega halda jeppanum frá Skýrr út tólf mánaða uppsagnarfrest sinn. MYND/Anton
Hæstiréttur segir að Hreinn Jakobsson, fyrrverandi forstjóri Skýrr, hafi brotið trúnaðarskyldu gegn fyrirtækinu með því að ráða sig til keppinautarins Anza. Hreini var fyrirvaralaust sagt upp starfi forstjóra hjá Skýrr 7. apríl á þessu ári. Þann 1. september var hann ráðinn forstjóri tölvu-þjónustufyrirtækisins Anza. Stjórnendur Skýrr töldu Hrein hafa brotið ákvæði ráðningarsamningsins um að ráða sig ekki til samkeppnisfyrirtækis næstu tvö árin og hættu að greiða honum laun sem áður hafði verið lofað að yrðu borguð út fyrir tólf mánaða uppsagnarfrest. Hreinn var sömuleiðis beðinn að skila Porche Chaeynne jeppa fyrirtækisins sem hann hefði annars átt að fá að halda út uppsagnarfrestinn. Hreinn taldi að Skýrr ætti að borga honum launin áfram þar sem ósannað væri að hann hefði brotið ákvæði ráðningarsamningsins um trúnaðarskyldu. Hann sagðist mundu halda jeppanum sem tryggingu fyrir laununum. Stjórnendur Skýrr sögðu augljóst að Hreinn hefði haft trúnaðarskyldur sínar að engu með því að ráða sig sem forstjóra hjá keppinauti Skýrr þótt meir en helmingur væri eftir af uppsagnarfrestinum. Ákvæði ráðningarsamningsins um að fyrirtækið legði forstjóra til bíl gæti ekki náð til þess að Skýrr ætti að útvega forstjóra allt annars fyrirtækis bíl. Með því að kyrrsetja Porche-jeppann væri Hreinn að taka lögin í eigin hendur. Við það væri ekki hægt að una. Eftir árangurslausa sáttafundi í haust höfðaði Skýrr mál gegn Hreini til að ná af honum jeppanum. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness, sem Hæstiréttur hefur nú staðfest, segir að starfsmaður á uppsagnarfresti beri sömu trúnaðarskyldur við vinnuveitanda eins og ef hann væri í starfi. Hann megi ekkert aðhafast sem geti skaðað atvinnurekandann. Hreinn hafi ráðið sig til starfa hjá Anza sem sé í harðri samkeppni við Skýrr og þar með brotið trúnaðarskylduna við Skýrr og gegn ráðningarsamningnum. Hann ætti því engan rétt til að halda jeppanum. „Það er mjög afgerandi í dómnum að með því að ráða sig sem forstjóra annars fyrirtækis þá hafi Hreinn brugðist trúnaðarskyldum sínum við Skýrr," segir Bjarni Birgisson, stjórnarformaður Skýrr, aðspurður um niðurstöðuna. Ekki náðist í Hrein Jakobsson. Porche Jeppi sömu tegundar og Skýrr keypti fyrir forstjórann Hrein Jakobsson. Verðið fyrir árgerð 2005 nálægt sjö milljónum króna.MYND/Pjetur .
Mest lesið Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Innlent Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent Skipagöngin samþykkt eftir pólitísk hrossakaup Fréttir Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Innlent Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Innlent Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Innlent Límdu efnin á fætur sína Innlent 250 skjálftar en enginn gosórói að svo stöddu Veður Breski herinn stöðvaði skip úr skuggaflota Rússa Erlent Fleiri fréttir Hákarlaárás og fyrrverandi varaformaður Viðreisnar vonsvikinn Um 400 skjálftar hafa mælst í þéttri hrinu Sagnfræðirannsóknir, upptaka evru, menntakerfið og málefni barna Tilkynnt um tónlistarhávaða um allan bæ Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Skjálfti í Bárðarbungu að stærð 4,8 Límdu efnin á fætur sína Kominn með nóg af tímasetningu lögreglu Fleiri hlynntir en andvígir samkvæmt nýrri könnun Geirdís geti leitað á tjaldsvæði og greitt markaðsverð Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Áfall fyrir bæjarfélagið „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Sjá meira
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent