Orka virkjana í Skagafirði einungis nýtt innan héraðs 8. október 2006 12:16
Baráttusamtök hafa verið stofnuð í Skagafirði gegn virkjun fallvatna héraðsins. Hugmyndir sveitarstjórnar Skagafjarðar eru háðar því skilyrði að orkan verði einungis nýtt innan héraðs, samkvæmt sérstakri bókun. Í henni segir að það sé samfélagsleg skylda að meta alla möguleika til eflingar atvinnu- og mannlífs í Skagafirði. Ákvörðun meirihluta sveitarstjórnar Skagafjarðar síðastliðinn fimmtudag að setja tvær virkjanir, Villinganesvirkjun og Skatastaðavirkjun, inn á aðalskipulagstillögu, hefur þegar leitt til þess að samtök hafa nú verið stofnuð gegn slíkum hugmyndum. Í tilkynnigu sem barst í gær frá nýstofnuðum áhugahópi um verndun Jökulsánna í Skagafirði, segir að markmið hópsins sé að vernda árnar og að þegar í stað verði horfið frá öllum hugmyndum um virkjun þeirra. Gunnar Bragi Sveinsson, oddviti framsóknarmanna og formaður byggðaráðs, segir það vaka fyrir meirihlutanum að gefa íbúum færi á að kynna sér málið og taka afstöðu, og það sé höfuðatriði að orkan verði ekki flutt úr héraði. Hann vekur athygli á sérstakri bókun sem fylgdi samþykktinni en þar segir að mjög ólíklegt sé að virkjanir við Villinganes eða Skatastaði verði á dagskrá næstu árin þar sem ljóst sé að iðjuver á Norðurlandi verður reist við Húsavík. Það sé samt samfélagsleg skylda að meta alla möguleika til eflingar atvinnu- og mannlífs í Skagafirði. Virkjanir í Héraðsvötnum komi aðeins til greina að undangengnum víðtækum rannsóknum og almennri upplýstri umræðu um kosti og galla, þar sem m.a. verði leitað álits íbúa Skagafjarðar. Er ítrekað að mögulegir virkjunarréttir verði í höndum Skagfirðinga og einungis nýttir til eflingar atvinnu og mannlífs innan héraðs.
Mest lesið Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Innlent Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Innlent „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ Innlent „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ Innlent Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Innlent Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Innlent Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið Innlent „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Innlent Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Innlent Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður Innlent Fleiri fréttir Lítil breyting í lokatölum Reykjavíkurkjördæmis suður Dró saman á milli fylkinga í lokatölum Reykjavíkur norður Margra ára vegferð í vændum sigri já-ið „Ég sé fram á að senda dúndurteymi, dúndurlandslið út“ „Skammist sín og bíti aðeins í sápu“ „Alveg skýrt að unga fólkið segir nei“ „Hefði viljað meira afgerandi stuðning við Nei-ið í fyrstu tölum“ Allt hnífjafnt í Kraganum samkvæmt fyrstu tölum Sextíu prósent segja já í Reykjavík norður 56 prósent segja nei í Norðausturkjördæmi Meirihluti segir já í Reykjavík suður „Ég er mjög kátur“ Nei-liðar umtalsvert fleiri samkvæmt fyrstu tölum í Norðvesturkjördæmi Sextíu prósent segja nei samkvæmt fyrstu tölum í Suðurkjördæmi Hvenær birtast tölurnar í kvöld og nótt? Bjargað úr sjálfheldu í Reynisfjöru Bein útsending: Kosningavaka Sýnar Evrópuvaktin: Úrslitin ráðast Hvað segja veðbankarnir? Valkyrjurnar halda blaðamannafund Tíu dósir ratað í ruslafötuna en rest á jörðina Geri lítið úr fyrirmyndarstarfi Átröskun vangreind hjá strákum og sífellt yngri börn þurfa aðstoð Vísbendingar um aukna kjörsókn Kjörsókn meiri en á sama tíma í síðustu þingkosningum „Þetta gæti ekki verið meira spennandi“ Allt bendi til lítils jökulshlaups Bjart og þurrt þegar þjóðin gengur að kjörborðinu Hafði afskipti af ellefu ára stúlku í miðbænum eftir miðnætti Möguleiki á stórum flóðbylgjum úr íslenskum jökullónum Sjá meira