Sterling brýtur samkeppnislög 6. janúar 2006 14:40 MYND/Stöð 2/NFS
Dönsk samkeppnisyfirvöld segja lággjaldaflugfélagið Sterling, sem er í eigu Íslendinga, brjóta lög með því að innheimta of há gjöld af flugmiðum sem keyptir eru með greiðslukortum. Jótlandspósturinn greindi frá þessu á vefsíðu sinni seint í gærkvöld. Þar er fullyrt að Sterling hafi engan metnað til að vera lággjaldaflugfélag, alla vega ekki á meðan það rukki álagningu af öllum þeim miðum sem greitt er fyrir með kreditkorti, eins og reyndin sé. Blaðamaður segir álagninguna vera um tíu prósent af verðinu, en það sé breytilegt eftir því hvaða kreditkort viðskiptivinurinn noti. Tekið er dæmi af kúnna sem kaupir flugmiða á 260 danskar krónur, eða um 2600 íslenskar. Hann þarf að borga þrjú hundruð íslenskar krónur í kostnað ef hann borgar með ákveðnum kreditkortum, en þeirra á meðal er Amercian Express. Borgi hann hins vegar með Visa eða Mastercard bætist hundrað króna álagning við verð flugmiðans. Að sögn Jótlandspóstsins innheimta kreditkortafyrirtækin hins vegar í mesta lagi 1,25 prósent af miðaverðinu í færslugjöld, eða - svo við höldum okkur við fyrra dæmi - um 33 krónur af miða sem kostar 2600 krónur. Sterling hirðir svo mismuninn. Þetta segja dönsk samkeppnisyfirvöld vera ólöglegt en ekki fylgir sögunni hvort Sterling verði ákært eða beitt einhvers konar refsingu fyrir athæfið.
Fréttir Innlent Mest lesið Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira