Viðbótargreiðslur vegna Kárahnjúkavirkjunar 5-6 milljarðar kr. 3. mars 2006 18:16
Viðbótargreiðslur Landsvirkjunar vegna ófyrirséðra útgjalda við Kárahnjúkavirkjun nema nú fimm til sex milljörðum króna. Auk þess má búast við háum fjárkröfum vegna aukins borkostnaðar. Engu að síður telur Landsvirkjun að heildarkostnaður verði innan þess ramma sem lagt var upp með, sem gerði ráð fyrir tíu til ellefu milljarða króna ófyrirséðum kostnaði. Langstærsti hluti þess viðbótarkostnaðar, sem þegar hefur verið gerður upp, féll til vegna stíflugrunns Kárahnjúkastíflu. Undir stíflustæðinu reyndust sprungur stærri og jarðvegur gljúpari en búist var við. Nýtt áhættumat gangvart jarðskjálftum kallaði einnig á meiri styrkingar og þéttingar. Þessi fimm til sex milljarða króna aukakostnaður er talsvert meira en ný Vaðlaheiðargöng eru talin kosta. En fleiri aukaútgjöld bíða Landsvirkjunar, einkum vegna risaboranna, og segir Agnar Olsen, framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun, að slíkar kröfur séu í farvatninu. Framkvæmdir við Kárahnjúkavirkjun eru nú liðlega hálfnaðar. Stærsti óvissuþátturinn, og sá sem helst gæti seinkað verklokum, er borun jarðganganna. Risaborarnir þrír eru sem stendur hins vegar allir í góðu bergi og boruðu samtals 111 metra í gær. Bor eitt, sem hóf sitt verk ofan stöðvarhúss í Fljótsdal, hefur gengið best og er nú búinn með 12,6 kílómetra en á eftir 4,3. Bor tvö hefur gengið verst en hann er þó kominn 8,6 kílómetra en á eftir fjóra þangað til honum verður snúið við til að bora göng í átt að Eyjabökkum. Bor þrjú boraði fyrst átta kílómetra í átt að Hálslóni en var svo snúið við fyrir áramót og borar hann nú í hina áttina til móts við bor númer tvö. Hann er búinn með 9,5 kílómetra en á eftir sex kílómetra. Samtals eru því eftir um fjórtán kílómetrar sem þurfa að klárast fyrir haustið ef virkjunin á að komast í gang á tilsettum tíma.
Fréttir Innlent Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira