Tillögur gætu haft áhrif á álver við Húsavík 12. október 2006 18:26
Tillögur orkuauðlindanefndar, um að veiting nýrra rannsóknarleyfa verði takmörkuð næstu árin, gætu haft áhrif á orkuöflun vegna álvers við Húsavík. Tillögurnar virðast hins vegar ekki trufla áform um álver í Helguvík.Nefnd á vegum iðnaðarráðherra, sem í sátu fulltrúar þingflokka og orkufyrirtækja, leggur til að Alþingi ákveði innan fjögurra ára hvar á landinu megi virkja og hvaða landsvæði eigi að vernda. Fram til þess tíma verði veiting nýrra leyfa til rannsókna og nýtingar orkulinda takmörkuð samkvæmt ákveðinni skilgreiningu.Tillögur nefndarinnar þýða meðal annars að Hitaveita Suðurnesja fær ekki rannsóknarleyfi fyrir Brennisteinsfjöll austan Kleifarvatns. Júlíus Jónsson, forstjóri Hitaveitu Suðurnesja, segir þetta ekki trufla áform um álver í Helguvík þar sem ekki hafi verið gert ráð fyrir að virkja í Brennisteinsfjöllum vegna fyrsta áfanga álversins. Vegna síðari áfanga hafi menn hins vegar horft til þess svæðis.Virkjanir þær á Suðurlandi sem Landsvirkjun áformar að reisa vegna stækkunar í Straumsvík eru á grænu ljósi.Meiri óvissa ríkir hins vegar um orkuöflun vegna álvers við Húsavík. Ástæðan er sú að Gjástykki, ofan Kröfluvirkjunar, lenti í þeim flokki sem nefndin telur að ekki eigi að heimila að rannsaka. Landsvirkjunarmenn telja hins vegar of snemmt að meta hvort þetta hafi áhrif á álver við Húsavík þar sem ekki er vitað hvort önnur jarðhitasvæði sem verða rannsökuð í Þingeyjarsýslum geti skilað nægilegri orku. Fulltrúi Landsvirkjunar lýsti í sérstakri bókun þeirri skoðun að heimila beri rannsóknir í Gjástykki enda hafi umsagnaraðilar, bæði sveitarstjórnir og opinberar stofnanir, þegar samþykkt þær.
Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Erlent Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi Innlent Fleiri fréttir „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Þurftu að keyra á hnífamann sem slóst við lögreglu Fjárlögin leiði til stöðnunar Landspítalans Áhugamálunum forgangsraðað framar náminu Sjá meira