Segir söluferlið vera óvandað 5. nóvember 2006 07:45 Dagur B. Eggertsson
Dagur B. Eggertsson, oddviti Samfylkingarinnar í borgarstjórn, segir það hafa verið mistök hjá meirihluta í borgarstjórn að fallast á söluna á hlut borgarinnar í Landsvirkjun á þeim forsendum sem lágu fyrir. Dagur segir slæmt að ríkið greiði ekki fyrir hlut sinn með bréfum sem hægt er að selja á markaði. "Kjarni málsins er sá að forsvarsmenn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar hafa lagt á það þunga áherslu á að ef það ætti að greiða fyrir hlutinn í bréfum þá þyrftu að vera á þeim fastir vextir, þannig að þau væru seljanleg á markaði. Það blasir við, að þegar bréfin eru óseljanleg, þá gerir það fjárstýringu sjóðsins þunglamalega, vegna þess að lífeyrissjóðir eru skuldbundnir til þess að tyggja félögum sínum hámarksávöxtun." Eins og greint var frá í Fréttablaðinu í gær sagði Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður lífeyrissjóðsins, það óheppilegt að ekki hefði verið látið greiða fyrir hlutinn með bréfum sem hægt væri að selja á markaði. Íslenska ríkið greiðir fyrir helmingshlut í Landsvirkjun, sem áður var í eigu Reykjavíkurborgar og Akureyrarbæjar, með skuldabréfi til 28 ára. Samtals greiddi ríkið rúmlega 30 milljarða fyrir hlutann en Reykjavíkurborg var áður 45 prósent eigandi í Landsvirkjun og Akureyrarbær rúmlega fimm prósent. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri segir Sigurð Snævar borgarhagfræðing og Birgi Finnbogason, fjáramálastjóra borgarinnar, hafa metið það svo að skynsamlegast væri að fá greitt með þeim hætti sem ákveðið var að fallast á.
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Sjá meira