Þetta er það sem koma skal 7. október 2006 09:45 Guðrún ögmundsdóttir vill að einkaaðilar fái að selja bjór og léttvín.
Frumvarp um afnám einkasölu Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á bjór og léttu víni var lagt fram á Alþingi í gær. Er þetta fjórða þingið í röð þar sem frumvarpið er lagt fram. Í því er kveðið á um að sveitarstjórnum verði falið að veita fólki eða fyrirtækjum leyfi til sölu bjórs og léttvíns. Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki, er sem fyrr fyrsti flutningsmaður en Guðrún Ögmundsdóttir, Samfylkingunni, er í hópi meðflutningsmanna. Guðrún kveðst sannfærð um ágæti þess að færa léttvínssöluna til einkaaðila. „Þetta er það sem koma skal og er raunin þegar horft er til vinnulags úti á landi. Þetta er því aðeins spurning um að taka stærra skref.“ Guðrún segist ekki óttast að neysla áfengis aukist, verði sala bjórs og léttvíns flutt til einkaaðila. „Ég held að þetta breyti engu, aðgengið er það mikið hvort eð er. Drykkjuvenjur hafa breyst eftir að bjórinn kom, fólk drekkur minna af sterku víni og þetta er áfram skref í þá átt.“ Frumvarp til laga sem girða fyrir auglýsingar á áfengi í skjóli óáfengra drykkja eða drykkja í líkum umbúðum og áfengir drykkir, var einnig lagt fram í gær. Ögmundur Jónasson hjá Vinstri grænum er fyrsti flutningsmaður þess.
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Fleiri fréttir Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Sjá meira