Efast um gæði þjónustunnar 24. september 2006 04:30 BUGL. Barnageðlæknafélag Íslands efast um að færsla grunnþjónustu til heilsugæslustöðva verði til þess að stytta biðlistana.
Félög barna- og unglingageðlækna Íslands og Stéttarfélag íslenskra félagsráðgjafa hafa gefið frá sér yfirlýsingar í kjölfar ákvörðunar heilbrigðisráðherra um að ráðast í stækkun Barna- og unglingageðdeildar og færslu grunnþjónustunnar til heilsugæslustöðva. Stjórn Barnageðlæknafélags Íslands er sammála því að styrkja beri grunnþjónustu í nærumhverfi barna og unglinga en það vekur furðu stjórnarinnar að ekki virðist gert ráð fyrir sérfræðiþekkingu barna- og unglingageðlækna á heilsugæslunni og í Miðstöð heilsuverndar barna, þar sem grunnþjónustan verður. Barnageðlæknar furða sig einnig á því að ekki sé inni í framtíðaráætlunum ráðherra að styrkja stöðu göngudeildar BUGL eða Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri á nokkurn hátt og að einungis eigi að beina þjónustunni í annan farveg en gæðin virðist aukaatriði. Þá efast barnageðlæknar um að þessar aðgerðir verði til þess að stytta biðlistana. Stjórn Stéttarfélags íslenskra félagsráðgjafa fagnar stækkun BUGL og eflingu grunnþjónustunnar. Þá skora félagsráðgjafar á heilbrigðisráðherra að nota heildarsýn við uppbyggingu geðheilbrigðisþjónustu við börn og unglinga og nýta sér þekkingu og reynslu af þverfaglegu samstarfi sem starfrækt er við heilsugæsluna í Grafarvogi.
Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira