Innlent

Kortavelta dregst saman

Kortavelta hefur dregist saman um rúmlega 3% frá því í ágústmánuði. Þetta kemur fram í hálffimm fréttum KB banka.

Samdráttinn má aðallega rekja til minnkandi veltu í debetkortum, en hún dróst saman um 9% milli mánaða. Velta þeirra í septembermánuði nam rúmlega 33 milljörðum króna.

Samdráttinn má aðallega rekja til minnkandi veltu í debetkortum, en hún dróst saman um 9% milli mánaða. Velta þeirra í septembermánuði nam rúmlega 33 milljörðum króna.

Kortavelta gefur vísbendingu um þróun einkaneyslu, en tölurnar nú benda til að enn frekar muni hægja á vexti hennar á komandi mánuðum.

Samdrátturinn gengur þvert á hagspá greiningardeildar KB banka sem gerði ráð fyrir að einkaneysla myndi vaxa um tæp 5% á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×