Baugsmáli áfrýjað 22. mars 2006 18:49
Settur ríkissaksóknari í Baugsmálinu áfrýjar sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá því fyrir viku til Hæstaréttar. Þætti Jóhannesar Jónssonar í Bónus og Tryggva Jónssonar, fyrrverandi aðstoðarforstjóra Baugs, verður ekki áfrýjað. Jóhannes hefur falið verjanda sínum að kvarta til Umboðsmanns Alþingis yfir embættisfærslu Jóns H.B. Snorrasonar saksóknara og Haraldar Johannessens ríkislögreglustjóra. Sigurður Tómas Magnússon, saksóknari, lýsti ákvörðun sinni yfir við verjendur fjögurra sakborninga, þeirra Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Kristínar Jóhannesdóttur og tveggja endurskoðenda Baugs í dag. Sýknudómur Héraðsdóms snerist um átta liði af þeim fjörutíu sem ákært var í á síðasta ári. Sex þeirra verður nú áfrýjað og lúta þeir að skýringum með ársreikningi Baugs hf. og innflutningi á bifreiðum frá Bandaríkjunum. Jóhannes Jónsson segir ákvörðun saksóknara valda vonbrigðum, enda hafi hann talið að þessi angi málsins væri út af borðinu. Augljóst er að hann er ekki laus allra mála, því settur saksóknari hefur enn þá 32 ákæruliði sem Hæstiréttur vísaði frá, til rannsóknar. Að mati Jóhannesar er það með hreinum ólíkindum ef yfirvöld ætla að halda áfram að elta ólar við ásakanir Jóns Geralds Sullenberger, sem héraðsdómstóll hefur úrskurðað óhæfan sem vitni en það breytir því ekki að Jóhannes hefur verið boðaður í enn eina skýrslutökuna í fyrramálið. Svo er að heyra að hann muni mæta til málamynda og þá aðeins til að að gera mönnum ríkislögreglustjóra grein fyrir því að hann hafi ekkert við þá að tala. Það hafi komið í ljós að þarna sé á ferðinni óþverragengi í íslensku samfélagi. Lög kveða á um að aðeins eigi að áfrýja opinberu máli ef meiri líkur en minni eru til þess að sakfellt verði. Að mati Jóhannesar hefur ekkert komið fram efnislega sem getur hnekkt niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur og því hafi áfrýjun ákæruliðanna sex þann tilgang einan að leysa úr fræðilegri óvissu varðandi lög um ársreikninga. Lagalegri óvissu eigi að leysa í sölum Alþingis en ekki með því að draga menn fyrir rétt eins og hver önnur tilraunadýr. Jóhannes telur ennfremur eðlilegt að Umboðsmaður Alþingis kanni sérstaklega hvernig standi á því að ekki hafi verið talin ástæða til að gefa út ákæru á hendur Jóni Gerald Sullenberger á grundvelli hans eigin framburðar þegar sami framburður var talinn tilefni til að gefa út ákærur á hendur honum og börnum hans. Telur hann að kanna verði hvort þeir Jón H.B. Snorrason og Haraldur Johannessen hafi þar gerst brotlegir við jafnræðisreglu stjórnarskrár íslenska lýðveldisins.
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira