Innlent

Fremstu listamenn heiðra H.C.Andersen á Kjarvalsstöðum

Ævintýraskáldið danska, HC Andersen, heimspekingurinn Kirkegaard og þrír af fremstu konseptlistamönnum samtímans, leiddu saman hesta sína á Kjarvalstöðum í dag við opnun sýningarinnar "HC Andersen Lífheimur." Eitt verkanna er risastórt teppi sem þekur nær allan vestursal Kjarvalsstaða og á að enduróma hugarheim skáldsins fræga.

Auðþekkjanleg ólíkindi er heitið á risateppinu. Mönnum býðst ekki einvörðungu að berja það augum eins og gerist og gengur á listasýningum heldur má einnig ganga á því, traðka á því og í rauninni er ætlast til þess af gestum að ganga eða spígspora eða tvístíga á því um hugarheim HC Andersens.

Verkið er eftir Joseph Kosuth sem var einn af máttarstólpum listaheimsins í Nýju Jórvík á sjöunda áratugnum þegar grunnar var lagður að konseptlistinni, sem snýst fyrst og fremst um myndir hugans og ýmsir hafa aldrei viðurkennt sem list. Hvað sem því líður þá er ævintýrið um nýju föt keisarans ofið í teppið og á mildara ljósi varpað á harða gagnrýni Sören Kirkegaards á eitt af fyrstu verkum Andersens fyrir 150 árum.

Kosuth varpar einnig fram hugmyndum um Andersen í porti Hafnarhússins.

Þess má geta að skáldið fæddist fyrir 201 ári uppá dag.

Félagar Kosuth engu síðri að frægð hjónin Ilya og Emilia Kabakov frá Moskvu heiðra einnig minningu danska ævintýraskáldsins á sýningunni með verki sem kallast Morgun, kvöld, nótt. Það er gríðarstór innsetning ef svo má að orði kveða í þremur hlutum sem byggð er inn í austursal Kjarvalsstaða. Enda þau hjónin að austan og Kosuth að vestan. Moskva - New York og Kaupmannahöfn þar einhvers staðar á milli.

Sýningin mun standa yfir til fimmta júní en hún var fyst sett upp í Nikolaj nýlistasafninu í Kaupmannahöfn á síðasta ári






Fleiri fréttir

Sjá meira


×