Fremstu listamenn heiðra H.C.Andersen á Kjarvalsstöðum 2. apríl 2006 18:00
Ævintýraskáldið danska, HC Andersen, heimspekingurinn Kirkegaard og þrír af fremstu konseptlistamönnum samtímans, leiddu saman hesta sína á Kjarvalstöðum í dag við opnun sýningarinnar "HC Andersen Lífheimur." Eitt verkanna er risastórt teppi sem þekur nær allan vestursal Kjarvalsstaða og á að enduróma hugarheim skáldsins fræga. Auðþekkjanleg ólíkindi er heitið á risateppinu. Mönnum býðst ekki einvörðungu að berja það augum eins og gerist og gengur á listasýningum heldur má einnig ganga á því, traðka á því og í rauninni er ætlast til þess af gestum að ganga eða spígspora eða tvístíga á því um hugarheim HC Andersens. Verkið er eftir Joseph Kosuth sem var einn af máttarstólpum listaheimsins í Nýju Jórvík á sjöunda áratugnum þegar grunnar var lagður að konseptlistinni, sem snýst fyrst og fremst um myndir hugans og ýmsir hafa aldrei viðurkennt sem list. Hvað sem því líður þá er ævintýrið um nýju föt keisarans ofið í teppið og á mildara ljósi varpað á harða gagnrýni Sören Kirkegaards á eitt af fyrstu verkum Andersens fyrir 150 árum. Kosuth varpar einnig fram hugmyndum um Andersen í porti Hafnarhússins. Þess má geta að skáldið fæddist fyrir 201 ári uppá dag. Félagar Kosuth engu síðri að frægð hjónin Ilya og Emilia Kabakov frá Moskvu heiðra einnig minningu danska ævintýraskáldsins á sýningunni með verki sem kallast Morgun, kvöld, nótt. Það er gríðarstór innsetning ef svo má að orði kveða í þremur hlutum sem byggð er inn í austursal Kjarvalsstaða. Enda þau hjónin að austan og Kosuth að vestan. Moskva - New York og Kaupmannahöfn þar einhvers staðar á milli. Sýningin mun standa yfir til fimmta júní en hún var fyst sett upp í Nikolaj nýlistasafninu í Kaupmannahöfn á síðasta ári
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira