Innlent

Verulegar áhyggjur af styrkleika krónunnar

Greiningardeildir bankanna telja að verðbólguhorfur séu enn slæmar þó þær hafi batnað frá því í haust. Seðlabankinn hækkaði stýrivexti um 25 punkta á föstudaginn og var það heldur lægri hækkun en búist var við.

Greiningardeild KB banka segir að hækkunin sé á mörkum þess að vera í samræmi við fyrri yfirlýs­ingar Seðlabankans. Hætta sé á því að svo lítil hækkun komi niður á trúverðugleika bankans.

Greining Landsbankans bendir á að á næstunni verði Seðlabankinn að haga peningastefnunni þannig að aðlögun gengis leiði ekki til meiri verðbólgu. Ef útgáfa skulda­bréfa taki ekki við sér í desember má gera ráð fyrir að krónan sígi áfram.

Tryggvi Þór Herberts­son, for­stöðumaður Hagfræði­stofn­unar Háskóla Íslands, segir að ákvörðun Seðlabankans hafi komið á óvart, sérstaklega í ljósi vaxtahækkana erlendis. Hann telur samt að hækkunin hafi jákvæð áhrif.

"Vaxtamuninum er haldið svip­uðum milli Íslands og hinna Evrópu­landanna sem þýðir að gengið mun eitthvað veikjast í framhaldinu en þetta sýnir að það er áfram sama aðhaldið þó það haldist kannski ekki jafnmikill hraði eða styrkur að hækkunum og hefur verið. Ég held að við hljótum að sjá frekari hækkanir framundan. Nú fer að þrengja meira að láns­fjár­magnsmarkaðnum, fjár­magnið verður dýrara og vonandi leiðir þetta út í langtímalánin þannig að það slái á þenslu á fast­eignamarkaði," segir Tryggvi Þór.

"Ég var að vonast til að Seðlabankinn myndi bíða með frekari vaxtahækkanir í bili. Það eru teikn á loft um að það slái á verðbólguna núna. Við höfum verulegar áhyggjur af því hvað gengið er sterkt og stýrivaxtahækkanir ýta undir að það haldi áfram að vera sterkt eða styrkist enn frekar. Veruleg vandræði eru hjá útflutnings- og samkeppnisgreinunum, hátækni­greinarnar, sem byggja sinn rekstur á tekjum í erelndri mynt, eiga undir högg að sækja, Hjartavernd hefur sagt upp fólki og Medcare Flaga er að flytja starfsemina úr landi. Við þessar aðstæður skiptir miklu máli að vinna gegn því að krónan sé svona ofursterk," segir Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur Alþýðusambands Íslands.

Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að vaxtahækkunin hafi verið skynsamleg. Forystumenn í atvinnulífinu hafi haft áhyggjur af því að of miklar vaxtahækkanir, sem hafi skilað sér í gegnum hátt gengi krónunnar, séu farnar að valda of miklu tjóni í atvinnulífinu og því sé ekki þörf á þeim. "Við teljum það jákvætt að bankinn skuli meta stöðuna með þessum hætti og taka mið af breytingum sem við teljum að hafi orðið í atvinnulífinu," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×