Innlent

Forsjárlausum unglingum vísað frá

Tjaldstæðið við Þórunnarstræti á Akureyri, ofan við Sundlaug Akureyrar, verður lokað um næstu helgi og segir Þóra Ákadóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, það í fyrsta sinn sem tjaldstæðið sé lokað á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Mikið hefur verið um ólæti og slæma umgengni á tjaldstæðinu kringum 17. júní og tvær undanfarnar verslunarmannahelgar, og hafa íbúar í nágrenni svæðisins ítrekað lagt fram kvartanir. Bæjaryfirvöld hafa því ákveðið að takmarka aðgang ungmenna að tjaldstæðum bæjarins og auka gæslu. Í bréfi sem íbúar í nágrenni tjaldstæðisins sendu Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra og Birni Jósef Arnviðarssyni, sýslumanni á Akureyri, í síðustu viku er dregin upp ófögur mynd af ástandinu á tjaldstæðinu undanfarin sumur. Segir þar að íbúarnir fái lítinn sem engan nætursvefn vegna drykkjuláta umræddar helgar, og þegar dagur rís gangi börn og fullorðnir fram á áfengisdauð ungmenni við gangstéttir eða í bílum sínum. "Fjöldi gesta af tjaldstæðinu ráfar um nágrenni þess þegar líða tekur á nóttina, meðal annars inn í garða fólks, gerir þar þarfir sínar, situr við drykkju, gerir upp sakir hvert við annað og eðlar sig. Eignir fólks eru fjarlægðar eða skemmdar, svo sem garðstólar, hjól eða sláttuvélar. Leikföng barna hverfa. Farið er inn í garðhús og skúra. Migið er utan í húsveggi og bíla, í runna og á lóðir. Þvottur hverfur af snúrum," segir meðal annars í bréfinu. Til að stemma stigu við þessu hefur bæjarráð Akureyrar ákveðið að tjaldstæðið við Þórunnarstræti verði ekki opnað fyrr en 20. júní í ár. Verið er að ljúka við að girða svæðið af og verður ferðafólki beint á tjaldstæðið að Hömrum, innan og ofan við byggðina á Akureyri. "Einungis þeir sem náð hafa 18 ára aldri fá að gista á tjaldstæðinu að Hömrum um helgina og er rekstraraðilum svæðisins skylt að vísa forsjárlausum ungmennum frá. Tilgangurinn er að skapa fjölskylduvænt umhverfi og afmá útihátíðastimpilinn sem fylgt hefur tjaldstæðunum," segir Þóra.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×