Forsjárlausum unglingum vísað frá 15. júní 2005 00:01
Tjaldstæðið við Þórunnarstræti á Akureyri, ofan við Sundlaug Akureyrar, verður lokað um næstu helgi og segir Þóra Ákadóttir, forseti bæjarstjórnar Akureyrar, það í fyrsta sinn sem tjaldstæðið sé lokað á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Mikið hefur verið um ólæti og slæma umgengni á tjaldstæðinu kringum 17. júní og tvær undanfarnar verslunarmannahelgar, og hafa íbúar í nágrenni svæðisins ítrekað lagt fram kvartanir. Bæjaryfirvöld hafa því ákveðið að takmarka aðgang ungmenna að tjaldstæðum bæjarins og auka gæslu. Í bréfi sem íbúar í nágrenni tjaldstæðisins sendu Kristjáni Þór Júlíussyni bæjarstjóra og Birni Jósef Arnviðarssyni, sýslumanni á Akureyri, í síðustu viku er dregin upp ófögur mynd af ástandinu á tjaldstæðinu undanfarin sumur. Segir þar að íbúarnir fái lítinn sem engan nætursvefn vegna drykkjuláta umræddar helgar, og þegar dagur rís gangi börn og fullorðnir fram á áfengisdauð ungmenni við gangstéttir eða í bílum sínum. "Fjöldi gesta af tjaldstæðinu ráfar um nágrenni þess þegar líða tekur á nóttina, meðal annars inn í garða fólks, gerir þar þarfir sínar, situr við drykkju, gerir upp sakir hvert við annað og eðlar sig. Eignir fólks eru fjarlægðar eða skemmdar, svo sem garðstólar, hjól eða sláttuvélar. Leikföng barna hverfa. Farið er inn í garðhús og skúra. Migið er utan í húsveggi og bíla, í runna og á lóðir. Þvottur hverfur af snúrum," segir meðal annars í bréfinu. Til að stemma stigu við þessu hefur bæjarráð Akureyrar ákveðið að tjaldstæðið við Þórunnarstræti verði ekki opnað fyrr en 20. júní í ár. Verið er að ljúka við að girða svæðið af og verður ferðafólki beint á tjaldstæðið að Hömrum, innan og ofan við byggðina á Akureyri. "Einungis þeir sem náð hafa 18 ára aldri fá að gista á tjaldstæðinu að Hömrum um helgina og er rekstraraðilum svæðisins skylt að vísa forsjárlausum ungmennum frá. Tilgangurinn er að skapa fjölskylduvænt umhverfi og afmá útihátíðastimpilinn sem fylgt hefur tjaldstæðunum," segir Þóra.
Fréttir Innlent Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira