Hótanirnar ganga á víxl 5. október 2005 00:01
Hótanirnar ganga á víxl á milli stóru flokkanna í Þýskalandi. Forsvarsmenn þeirra gera nú þriðju tilraun til að ná samkomulagi um samsteypustjórn en hvorki gengur né rekur. Búist er við að viðræðurnar dragist fram í nóvember. Angela Merkel og Gerhard Schröder vilja ennþá bæði verða kanslari og nú hóta þau að slíta viðræðum um samsteypustjórn gefi hitt ekki eftir. Kristilegir demókratar segja að jafnaðarmenn verði að sætta sig við grundvallarreglur þingræðisins. CDU hafi meira fylgi en SPD og því sé eðlilegt að Merkel verði kanslari. Schröder hefur hingað til neytað að víkja þrátt fyrir að flokkur hans hafi hlotið minna fylgi. Á mánudagskvöldið sagðist hann að vísu ekki ætla að gera neitt sem gæti orðið til þess að hindra myndun stjórnar en flokkssystkin hans virðast ekki enn vera reiðubúinn að fórna honum. Stjórnmálaskýrendur telja þó að það sé leikflétta, til þess ætluð að fá kristilega demókrata til að gefa eftir á öðrum sviðum, til að mynda gefa eftir einhver ráðherraembætti. Jafnaðarmenn vilja að Merkel og félagar virði þá sem jafningja þrátt fyrir minna fylgi. Enginn tekur hótanirnar alvarlega heldur eru þær einungis taldar leikflétta, enda vandséð að hægt verði að mynda aðra stjórn en samsteypustjórn jafnaðarmanna og kristilegra demókrata. Merkel og félagar hafa að vísu imprað á þriggja flokka stjórn með frjálslyndum og græningjum, en græningjar vilja ekki taka þátt í slíkri stjórn. Þrátt fyrir deilurnar hefur náðst samkomulag í lykilþáttum, meðal annars um breytingar á skattalögum og umbætur á fjárlögum. Hlutabréfamarkaðurinn brást vel við því en ekki líst öllum vel á samsteypustjórnina. Virtir, þýskir efnahagssérfræðingar telja víst að stjórnin þýði algjöra stöðnun í stað nauðsynlegra umbóta og almennt þykir líklegt að slík stjórn myndi ekki sitja út kjörtímabilið, heldur verði efnt til kosninga á ný eftir tvö ár í mesta lagi.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira