Átta hundruð á hvern Íslending 8. janúar 2005 00:01
Miðað við höfðatölu hefur hver Íslendingur gefið átta hundruð og tuttugu krónur til að lina þjáningar bágstaddra eftir hamfarirnar á annan jí jólum við Indlandshaf. Heildarupphæð íslenskra framlaga er komin í 240 milljónir króna. Munar þar mestu um framlag ríkisstjórnarinnar, alls 150 milljónir sem samþykkt var á föstudag. Rauði kross Íslands hefur safnað um áttatíu milljónum króna hjá almenningi og fyrirtækjum. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á föstudag að bæta sex milljónum við þær fimm milljónir sem þegar höfðu verið af hendi raktar í þá söfnun og Reykjavíkurborg lagði til tíu milljónir. Hjálparstarf kirkjunnar hefur safnað hálfri fimmtu milljón, SOS barnahjálp einni milljón og Barnavernd hálfri tveimur milljónum. Samtals eru því framlög hjálparstofnana og ríkissjóðs á Íslandi 240 milljónir króna. Ef litið er til Norðurlanda hafa Íslendingar látið minna af hendi rakna en Norðurlandaþjóðirnar að Svíum undanskildum. Norðmenn eru gjafmildastir með rúmlega 2.500 krónur á mann og eru næstrausnarlegasta þjóð heims á eftir Áströlum. Framlög okkar eru heldur lægri miðað við höfðatölu en Íslendingar hafa látið af hendi rakna minna fé en Danir og Finnar, um það bil 1.000 krónur á mann, en talsvert meira en Svíar með 500 krónur á mann. Athygli vekur að auðugasta ríki heims, Bandaríkin, er næstneðst á lista með aðeins 72 krónur á mann. Aðeins Frakkar láta minna af hendi rakna miðað við höfðatölu eða 57 krónur. Reyndar versnar enn samanburðurinn ef tillit er tekið til þess að Evrópusambandið greiðir rúma 38 milljarða króna til neyðaraðstoðar og uppbyggingar á hamfarasvæðunum. Vonir standa til að framlög Íslands eigi eftir að hækka umtalsvert. Elín Þ. Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri söfnunarinnar "Neyðarhjálp úr norðri", segir að ekki sé stefnt að því að ná neinni ákveðinni fjárhæð inn í söfnuninni en vonir standi til að góður árangur náist enda ætli öll hjálparsamtök að leggjast á eitt. Söfnunin nær hámarki með beinum útsendingum allra sjónvarpsstöðva laugardagskvöldið 15. janúar.
Asía - hamfarir Fréttir Innlent Mest lesið „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Innlent Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Fleiri fréttir „Langþreytt á að það séu boðaðir fundir þegar eitthvað kemur upp á“ Leita logandi ljósi af nýju svæði undir kirkjugarð á Selfossi Greindist með MND 27 ára: „Lífið er of stutt til að vera neikvæður“ Barátta við illvígan sjúkdóm, furðuleg uppátæki fanga og svakalegar hitatölur Maðurinn sem var stunginn í Mjóddinni liggur enn þungt haldinn Gámurinn á bak og burt Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni“ Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Sjá meira