Ryður brautina fyrir önnur félög 2. maí 2005 00:01
Breska kvenfataverslanakeðjan Mosaic Fashion undirbýr skráningu í Kauphöll Íslands í kjölfar hlutafjárútboðs fyrir 4,8 milljarða króna. Með skráningunni verður Mosaic fyrsta erlenda félagið sem skráð er í Kauphöll Íslands og segir forstjóri Kauphallarinnar það geta rutt brautina fyrir önnur erlend félög. Mosaic Fashion á og rekur meira en 600 kvenafataverslanir undir merkjum Oasis, Coast, Karen Millen og Whistles og eru flestar verslanir í Bretlandi og á Írlandi en þrjár verslanir eru á Íslandi. Um síðustu áramót var heildarfjöldi starfsmanna bresku keðjunnar um 5.400. Baugur Group og Kaupþing banki eiga meirihluta í félaginu en rekstur Mosaic Fashion hefur gengið mjög vel undanfarin ár. Nam velta síðasta árs ríflega fjörutíu og þremur milljörðum íslenskra króna. Verið er að undirbúa skráningu félagsins í Kauphöll Íslands í tengslum við fyrirhugað tæplega fimm milljarða króna hlutafjárútboð sem beint verður til almennings og fagfjárfesta. Seldir verða nýir hlutir og er stefnt að því að hlutafé félagsins verði skráð fyrir lok júní næstkomandi í almennu útboði. Með skráningunni verður Mosaic Fashion fyrsta erlenda fyrirtækið sem skráð er í Kauphöll Íslands. Það verður jafnframt í hópi stærstu félaga í kauphöllinni en breska kvenfataverslanakeðjan nær aftur til ársins 1981 með stofnun Karen Millen. Derec Lovelock, forstjóri Mosaic Fashion, segir skráninguna enn eitt skrefið í þeirri stefnu félagsins að verða leiðandi alþjóðlegt tískuvörufyrirtæki með áframhaldandi uppbyggingu sterkra vörumerkja. Tilgangurinn sé að afla fjár til frekari útrásar og vaxtar. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, segir skráninguna hafa mikla þýðingu fyrir kauphöllina og geta rutt brautina fyrir skráningu annarra erlendra félaga.
Fréttir Innlent Mest lesið „Vona að þú sofir vel“ Innlent „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ Innlent Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Innlent „Þetta er vítahringur sem endurtekur sig í sífellu!“ Innlent Kosningar í Ástralíu: Fylgi Íhaldsflokksins dvínar vegna framgöngu Trump Erlent Fyrirgefur fjölskyldunni og leitar sátta Erlent Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu Innlent Sér fram á bjarta framtíð fyrir börnin þökk sé styrknum Innlent Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína Innlent Hefur áhyggjur af arftaka sínum Innlent Fleiri fréttir Nýtt 44 herbergja hjúkrunarheimili byggt í Hveragerði „Þetta er vítahringur sem endurtekur sig í sífellu!“ Öskrandi reiður í vandræðum með að leigja rafskútu Glussakerfið ónýtt eftir brunann Hefur áhyggjur af arftaka sínum Sér fram á bjarta framtíð fyrir börnin þökk sé styrknum Umtöluð frelsissvipting og stórslösuð sjónvarpsstjarna Búið að innsigla Kastrup: „Góður að taka á móti fólki en ömurlegur í tölvupóstum“ Tifandi tímasprengjan sem grunuð er um frelsissviptingu „Ekki bara rekinn heldur á staðnum og fyrirvaralaust“ „Vona að þú sofir vel“ Eldur í ruslabíl vestur í bæ Buðu mótherjum Björgólfs fyrst þjónustu sína Mannréttindadómstóllinn blandar sér í Vatnsendamálið „Mér finnst þetta ómöguleg framkoma“ Í leyfi frá þingstörfum og flytur til New York Óljóst hvers vegna ferðamanni var haldið í gíslingu Borgarstjóri sé brennuvargur en Framsókn í slökkviliðinu „Ég meina, hann er að missa fyrirtækið sitt“ Sindri og Védís Hervör til Kópavogsbæjar Bókhaldstækni og aukin skattheimta skýri afganginn Tæplega tíu milljarða viðsnúningur Kári var harðákveðinn að hætta ekki sem forstjóri Stuðningsmenn Oscars mótmæltu og Kári Stefáns hættur Bein útsending: Kynna ársreikning Reykjavíkurborgar „Við gerum ekki svona við börn“ Mótmælt við ríkisstjórnarfund: „Oscar á heima hér“ Kári hættur hjá Íslenskri erfðagreiningu Lokunin óásættanleg og muni leiða til verðhækkana fyrir íbúa Líkamsárásir og brotist inn í raftækjaverslun Sjá meira