Innlent

Höfða mál gegn ríkinu

Halldór H. Backman hrl. sér um málshöfðun hópsins og segir hann að mennirnir telji að rökin fyrir nýjum lögum um fasteignasala séu ekki haldbær. Þetta gildi sérstaklega um höft á eignarhaldi á fasteignasölum en löggiltir fasteignasalar verða að eiga yfir helming í þeim, samkvæmt nýju lögunum. Fasteignasölur hafa hinsvegar ekki alltaf verið í meirihlutaeigu löggiltra fasteignasala. Hópurinn telur að þessi höft á eignarhaldi standist ekki stjórnarskrá og því sé verið að eyðileggja virði fyrirtækjanna með lagasetningunni. Helgi Bjarnason, framkvæmdastjóri Draumahúsa, segir að mennirnir, sem standa að málshöfðuninni, telji sig vera með fyrirtæki sem séu mikils virði ef eðlileg skilyrði eru á markaðnum og hver sem er geti keypt, ekki bara 250 manna hópur löggiltra fasteignasala. "Þarna er verið að eyðileggja mögulegt söluandvirði þessara fyrirtækja. Það er ekki gerð krafa um það í lögum að flugstjóri eigi meirihluta í FL Group enda væri virði fyrirtækisins þá allt annað en það er á frjálsum markaði. Það er ekki heldur gerð krafa um að verðbréfamiðlari eigi Landsbankann þó að mikil ábyrgð fylgi verðbréfamiðluninni og verðbréfamiðlari verði að starfa þar á gólfinu," segir hann. "Aðalinntakið er að þarna verið að koma á viðskiptahöftum. Þetta er misskilningur þeirra sem sömdu lögin um það hvernig beri að verja hagsmuni aðila og rugla saman hugmyndafræði um hvernig hagsmunir neytenda varðir og hvernig rekstur fyrirtækja gengur fyrir sig," segir Helgi. Vonir standa til að niðurstaða fáist í málið næsta vetur.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×