Innlent

Viðgerð ólokið á sæstrengnum

Viðgerð er ekki enn lokið á Farice eitt sæstrengnum sem rofnaði við Edinborg í Skotlandi í gær og olli töf og truflun á talsímaumferð og netsambandi héðan við útlönd í gærmorgun. Nú er hins vegar búið að flytja meiri umferð yfir á gamla Cantat þrjú strenginn og gengur talsímaumferðin ótrufluð. Þótt Farice-strengurinn sé nú bilaður jókst talsímaöryggi verulega með tilkomu hans því nú eru að jafnaði tvær leiðir opnar og önnur dugar ef hin bilar. Þá auðveldar þetta líka viðhald á strengjunum en við þær aðstæður er hagstætt að geta lokað fyrir samband á meðan unnið er að viðhaldinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×