Innlent

Reykingar mæðra leiða til óþekktar

Þrisvar sinnum meiri líkur eru á að börn séu ofvirk hafi mæður þeirra reykt á meðgöngunni. Þetta er niðurstaða hóps vísindamanna við háskólann í Árósum í Danmörku, en greint eftir þá var birt í tímaritinu Pediatrics í morgun. Börn mæðra sem reykja á meðgöngunni fá í sig mikið magn níkótíns sem hefur áhrif á þá mótakara í heilanum sem taka á móti dópamíni, sem er nauðsynlegt svo að heilinn þroskist eðlilega. Fyrir vikið eru þrisvar sinnum meiri líkur á að börn þessara mæðra fæðist ofvirk og með athyglisbrest.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×